Fleiri segjast spila einsamlir en með öðrum

Rafíþróttir, tölvur, tölvuleikir.
Rafíþróttir, tölvur, tölvuleikir. Ljósmynd/Unsplash/Alex Haney

Fleiri lesendur rafíþróttavefsins spila einsamlir ef marka má niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sem hefur verið virk að undanförnu.

Nokkuð jafnt var á milli þeirra sem sögðust spila með vinum sínum að jafnaði og þeirra sem sögðust yfirleitt spila einsamlir. Þá voru 43,7% lesenda sem sögðust yfirleitt spila með öðrum og þá vinum sínum en 48,4% sem spila yfirleit einir.

Nokkrir spila að mestu með ókunnugum netverjum en það voru 7,9% lesenda sem sögðu svo.

Hér fyrir neðan má sjá skjáskot af niðurstöðunum og er ný könnun nú þegar komin í loftið.

Niðurstöður úr skoðanakönnun rafíþróttavefsins.
Niðurstöður úr skoðanakönnun rafíþróttavefsins. Skjáskot/mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert