Piparúða beitt á hundruð mótmælenda í Póllandi Atli Ísleifsson skrifar 23. október 2020 13:07 Ekki var einungis mótmælt í höfuðborginni Varsjá, heldur héldu einnig fjölmargir mótmælenda út á götur í Krakow, Lodz og Szczecin. GEtty
Lögregla í Póllandi beitti piparúða á nokkur hundruð mótmælenda sem höfðu safnast saman á götum Varsjár í gærkvöldi til að mótmæla dómi stjórnlagadómstóls landsins sem bannar þungunarrof vegna fósturgalla. Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðalögreglu fyrir utan heimili aðstoðarforsætisráðherrans Jaroslaw Kaczynski í Varsjá. Mótmælendur höfðu gengið í fylkingu að heimili Kaczynski sem er formaður stjórnarflokksins Laga og réttlætis (PiS) og almennt talinn valdamesti maður landsins. Segir lögregla að um fimmtán manns hafi verið handteknir. Dómur stjórnlagadómstólsins þýðir að þungunarrof verður nú bannað í nær öllum tilfellum í landinu og einungis heimilt í tilfelli nauðgunar, sifjaspells eða þegar líf eða heilsa móður er í hættu. Löggjöf Póllands þegar kemur að þungunarrofi þykir ein sú strangasta í álfunni og segir í frétt BBC að áætlað sé að um 100 þúsund konur leiti til annarra landa á hverju ári til að gangast undir þungunarrof vegna hinna ströngu reglna. Ekki var einungis mótmælt í höfuðborginni Varsjá, heldur héldu einnig fjölmargir mótmælenda úr á götur í Krakow, Lodz og Szczecin. Ríkisstjórn hægriflokksins Laga og réttlætis hefur lengi haft það á stefnuskránni að þrengja enn að rétti kvenna til þungunarrofs. Flestir dómarar við stjórnlagadómstólinn voru skipaðir af flokknum.
Pólland Þungunarrof Tengdar fréttir Þungunarrof nær algerlega bannað í Póllandi Dómur stjórnlagadómstóls Póllands um að þungunarrof vegna fósturgalla stangist á við stjórnarskrá landsins þýðir að þungunarrof verður nú bannað í nær öllum tilfellum í landinu. 22. október 2020 15:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Sjá meira
Þungunarrof nær algerlega bannað í Póllandi Dómur stjórnlagadómstóls Póllands um að þungunarrof vegna fósturgalla stangist á við stjórnarskrá landsins þýðir að þungunarrof verður nú bannað í nær öllum tilfellum í landinu. 22. október 2020 15:59