Sigríður Dögg býður sig fram til formanns Blaðamannafélagsins Eiður Þór Árnason skrifar 15. apríl 2021 20:05 Sigríður Dögg Auðunsdóttir vonast til þess að sér verði treyst til þess að leiða félagið inn í nýja tíma. Aðsend Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á RÚV, hefur ákveðið að gefa kost sér í stöðu formanns Blaðamannafélags Íslands. Býður hún sig fram ásamt Heimi Má Péturssyni, fréttamanni á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sem tilkynnti framboð sitt í mars.
Greint er frá þessu á vef Blaðamannafélagsins (BÍ) en kosið verður um stöðuna á aðalfundi þess þann 29. apríl. Hjálmar Jónsson, núverandi formaður gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Í tilkynningu Sigríðar til BÍ segir hún þörf á því að aðlaga félagið að nútímanum og móta starfsemi þess að breyttum þörfum nýrra tíma með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi. „Við þurfum að setjast niður, öll sem eitt, og koma okkur saman um hvað félagið á að standa fyrir, hvaða hlutverki það á að gegna í samfélaginu og gagnvart störfum okkar. Ég tel að nýr formaður eigi að stýra slíku endurbótastarfi og vera leiðtogi í þeirri vinnu og ég er sannfærð um að ég sé rétta manneskjan til þess að gera það.“ Mikilvægast að standa þétt við bakið félagsmönnum Sigríður hefur unnið við blaða- og fréttamennsku með hléum frá árinu 1999 þegar hún lauk námi í Hagnýtri fjölmiðlun. Auk þess hefur hún stofnað og stýrt fjölmiðlum og segist hafa góða innsýn inn í flest störf innan íslenskra fjölmiðla. Hún segir það vera eitt helsta hlutverk formanns og félagsins að standa þétt við bak blaða- og fréttamanna sem sitja undir ásökunum og ærumeiðingum tengdum störfum sínum og verja þá og störf þeirra þegar þess er þörf. „Þá er nauðsynlegt að finna leiðir til þess að ná fram bættum kjörum og auknu starfsöryggi í stéttinni og vinna að því að efla skilning á mikilvægi fjölmiðla í samfélaginu og þýðingu þeirra í lýðræðisþjóðfélagi,“ segir Sigríður í tilkynningu sinni til BÍ. „Ég á auðvelt með að vinna með fólki, er hugmyndarík og skipulögð og mér gengur vel að fá fólk í lið með mér þegar þess þarf. Ég er sannfærð um að sá formaður sem Blaðamannafélag Íslands þarf um þessar mundir er sá sem kann að miðla málum, fá fólk til þess að vilja vinna saman, er jákvæður og drífandi, hefur skýra sýn um framtíð félagsins og getur miðlað henni.“
Fjölmiðlar Kjaramál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira