Fallið frá hugmyndum um mislæg gatnamót Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2020 14:21 Svona er ætlunin að gatnamóti Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar komi til með að líta út. Reykjavíkurborg
Fallið hefur verið frá hugmyndum um að ráðast í framkvæmd mislægra gatnamóta á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Þess í stað felur ný útfærsla í sér brú og ljósastýrð vegamót sem eigi að hafa minna rask í för með sér. Á vef Vegagerðarinnar segir að nýja útfærslan feli í sér ljósastýrð vegamót sem þó taki mið af landfræðilegum aðstæðum en stefnt er á að útboð verði á næsta ári. Með þessari leið er ætlunin að hljóðvist muni batna fyrir nálægar íbúðir í Fellahverfi. Breytt útfærsla hafi ennfremur ekki áhrif á fyrirhugaðan Vetrargarð í Breiðholti og bæti samgöngur gangandi og hjólandi. „Gert er ráð fyrir að Arnarnesvegur fari á brú yfir Breiðholtsbraut en mæti götunni í plani á ljósastýrðum gatnamótum. Gatnamótin verða með þessari lausn ekki eins landfrek og inngrip í landslag og jarðrask og efnisflutningar verða mun minni en í öðrum mögulegum lausnum. Þá verður með brúnni til góð leið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli Elliðaárdals, Seljahverfis og efri byggða Kópavogs,“ segir á vef Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg Hávaði undir viðmiðunarmörkum Gert er ráð fyrir að hljóðvist verði undir viðmiðunarmörkum vegna smíði 1,5 metra hás hljóðveggs á brú og rampa við Breiðholtsbraut auk endurbættrar hljóðmanar milli nýrra gatnamóta og undirganga milli Jaðarsels og Suðurfells. „Sú lausn sem sátt er um að vinna áfram felst í hringtorgi við Vatnsendahvarf, einni brú yfir Breiðholtsbraut fyrir akreinar og stíga, og tengingu við Breiðholtsbraut með umferðarljósum. Núverandi ljósastýrð vegamót við Vatnsendaveg verða felld niður en þó verða þar leyfðar hægribeygjur. Þessi lausn skapar aukið rými við skíðabrekku í Reykjavík miðað við þær lausnir sem samþykktar voru í mati á umhverfisáhrifum og tekur jafnframt minna rými norðan Breiðholtsbrautar. Munur á tillögunni nú og þeirri sem samþykkt var í matsferlinu er því að ekki er um fullbúin mislæg vegamót að ræða heldur ljósastýrð vegamót,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Arnarnesvegur (411) flokkast sem stofnvegur í umsjá Vegagerðarinnar, en Arnarnesvegur er hluti af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem sveitarfélögin á svæðinu og Vegagerðin standa í sameiningu að.
Samgöngur Skipulag Reykjavík Kópavogur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira