Innlent

Einn greindist með veiruna í gær

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Einn greindist með kórónuveiruna í gær. 
Einn greindist með kórónuveiruna í gær.  Vísir/Vilhelm

Einn greindist með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 innanlands í gær og greindist hann hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Átta greindust á landamærunum og bíða þeir allir niðurstöðu úr mótefnamælingu samkvæmt nýjum tölum á covid.is.

315 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og 2.473 á landamærunum. Þá voru 13 sýni greind hjá Íslenskri erfðagreiningu. Samkvæmt upplýsingum á covid.is eru 112 í einangrun og fækkaði þeim um fjóra á milli daga. 646 eru nú í sóttkví og fjölgaði þeim um rúmlega sjötíu frá því í gær.

Einn liggur nú á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu.

Enn eru virk smit í öllum landshlutum, langflest á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru einnig langflestir, eða 420, í sóttkví og fækkaði þeim um 62 á milli daga. Þar á eftir kemur Suðurland, þar sem 96 eru í sóttkví og fjölgaði þeim um þrjá milli daga.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur fór úr niður í 21,0. Þá fór nýgengi landamærasmita úr 4,6 í 5,5.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×