Verulegar breytingar á sóttkví

Willum Þór Þórsson að loknum ríkisstjórnarfundinum í dag.
Willum Þór Þórsson að loknum ríkisstjórnarfundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verulegar breytingar verða á sóttkví en reglugerð þess efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag. Nú þurfa þeir sem útsettir eru fyrir smitum utan heimilis eingöngu að fara í smitgát og börn og unglingar eru algjörlega undanþegin reglum um smitgát.

Börn sæta sóttkví ef um smit á heimili er að ræða.

Nýju reglurnar taka gildi á miðnætti.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að þessar reglur muni breyta miklu en eins og staðan er í dag eru rúmlega 13 þúsund í sóttkví. 

Ráðherra segir í samtali við mbl.is að þeir sem eru nú í sóttkví losni þaðan á miðnætti, hafi þeir verið útsettir fyrir smiti utan heimilis.

„Þessar breytingar munu hafa gífurleg áhrif á smitrakningu. Það hefur verið mikið álag á skólafólki að halda utan um hana en nú er hún bara frá,“ segir Willum en helmingur þeirra sem er í sóttkví núna eru börn og unglingar.

Willum Þór ræðir við blaðamann mbl.is í Ráðherrabústaðnum.
Willum Þór ræðir við blaðamann mbl.is í Ráðherrabústaðnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki var tilkynnt um breytingar á samkomutakmörkunum en Willum hyggst kynna afléttingaáætlun á föstudag. Hann segir of snemmt að tjá sig eitthvað um hana á þessari stundu.

Með þeirri breytingu sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið verður sóttkví og smitgát með eftirfarandi hætti:

  • Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.
    • Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
    • Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
    • Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.
  • Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.
    • Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
    • Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.
    • Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert