Sport

Anton Sveinn flaug á­fram á nýju Ís­lands­meti

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Anton Sveinn í þann mund að slá eigið Íslandsmet.
Anton Sveinn í þann mund að slá eigið Íslandsmet. Sundsamband Íslands

Anton Sveinn McKee setti nýtt Íslandsmet í 200 metra bringusundi og er meðal þeirra 16 sem komust áfram á HM í sundi sem nú fer fram í Ungverjalandi.

Anton Sveinn er staddur í Búdapest þar sem HM í 50 metra laug fer fram. Hann gerði sér lítið fyrir og náði fimmta besta tíma í undanrásunum 200 metra bringusunds rétt í þessu. Synti Anton Sveinn á 2:09,69 mínútum sem er einnig nýtt Íslandsmet.

Hann sló þar með eigið met, sem hann setti einnig á þessu ári, en þá synti hann á 2:10,02 mínútum. Hann gerði enn betur í dag og verður spennandi að sjá hvað Anton Sveinn gerir í úrslitasundinu sem fram fer síðar í dag.

Anton Sveinn fyrir sund dagsins.Sundsamband Íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×