Landsliðsmaður Úganda til Vestmannaeyja

Elvis Bwomono (t.h.).
Elvis Bwomono (t.h.). Ljósmynd/Southend United

Úgandamaðurinn Elvis Bwomono er kominn með leikheimild með ÍBV og mun leika með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu í sumar.

Þessi 23 ára gamli bakvörður á 116 leiki í C og D-deild Englands með Southend en þar vann hann með Hermanni Hreiðarssyni þjálfara ÍBV. Hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Southend á síðasta ári. 

Þá á hann einnig tvo landsleiki fyrir Úganda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert