Segir of seint að bregðast við omíkron með takmörkunum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. desember 2021 23:00 Bretar hafa gripið til þess ráðs að krefja ferðalanga um neikvæð Covid-próf sem tekin eru áður en haldið er til landsins. Aðgerðirnar taka gildi aðfaranótt þriðjudags. Hollie Adams/Getty Nýjustu breytingar breskrar stjórnvalda á ferðatakmörkunum til landsins, sem gripið hefur verið til í því skyni að stemma stigu við útbreiðslu omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar þar í landi, koma of seint að mati vísindamanns sem ráðleggur ríkisstjórninni við sóttvarnaaðgerðir.
Mark Woolhouse, sem er prófessor í faraldsfræði, líkir nýjustu aðgerðum breskra stjórnvalda við að „loka hesthúshurðinni þegar hesturinn er hlaupinn á brott.“ Breytingarnar, sem taka gildi aðfaranótt þriðjudags, felast einna helst í því að ferðalangar yfir tólf ára aldri þurfa nú að framvísa neikvæðu PCR-prófi sem tekið var áður en haldið var til Bretlands. Þá hefur Nígería bæst við á svokallaðan rauðan lista, en ferðalangar frá löndum á listanum þurfa að sæta tíu daga sóttkví við komuna til landsins. Ísland er ekki á rauðum lista Breta. Innflut smit ekki vandamálið Breska ríkisútvarpið hefur eftir Woolhouse að sannarlega hafi það áhrif að fleiri omíkron-smitaðir komi til landsins. Hins vegar verði það samfélagssmit sem verði helsti drifkraftur næstu bylgju veirunnar. Hann bætti því við að fjöldi omíkron-smita í Bretlandi væri ekki hár þessa stundina, og sagðist telja að fjöldi þeirra sem bæru afbrigðið nú væri talinn í „hundruðum frekar en þúsundum.“ Hins vegar sagði hann afbrigðið dreifast fremur hratt um Bretland og benti á að ef fram héldi sem horfði þar í landi, sem og í Suður-Afríku þar sem afbrigðið greindist fyrst, þá kynni afbrigðið að velta Delta-afbrigðinu úr sessi sem ráðandi afbrigði veirunnar víða um heim. Lítið er vitað um omíkron-afbrigðið á þessari stundu en því hefur verið velt upp af vísindamönnum að það kunni að vera meira smitandi en fyrri afbrigði og að það eigi greiðari leið fram hjá þeirri vörn sem bóluefni veita. Þó hefur því einnig verið velt upp að afbrigðið valdi vægari veikindum en önnur afbrigði. Vísindamenn hafa þó lagt áherslu á það, vegna þess hve nýtilkomið afbrigðið er, að það muni taka nokkurn tíma fyrir heiminn að átta sig á eiginleikum afbrigðisins. Í því samhengi nefndi Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, tímaramma upp á tvær til þrjár vikur nú fyrir helgi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Fleiri fréttir Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Sjá meira