Rjúpnaveiði lítil í vetur: Formaður Skotvís telur líklegt að fálkadauða megi rekja til rjúpnaleysis Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. desember 2020 17:49 Rjúpnaveiði hefur verið lítil í vetur. Vísir/Vilhelm Rjúpnaveiði hefur verið fremur lítil í vetur og segir formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, að það sem bjargi jólamatnum á mörgum heimilum séu rjúpur í frystinum frá síðasta vetri. Veiðin rétt dugi fyrir jólamatnum. „
Tilfinningin er sú að þetta sé svipað og var 2011, þá voru þetta um 30 þúsund rjúpur. Það er alveg nóg í jólamatinn en ekki mikið meira,“ sagði Áki Ármann Jónsson, formaður Skotvís, en hann ræddi rjúpnaveiðina í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni seinni partinn í dag. Veiðin hafi verið mjög misjöfn á milli landshluta, og jafnvel innan þeirra líka. „Sumir voru bara með nokkra kílómetra milli hvors annars, annar fékk slatta en hinn ekki neitt,“ segir Áki. Vandamálið megi rekja til þess að rjúpnaungum fari fækkandi á hverja hænu. Áður fyrr hafi um 8,6 rjúpnaungar fylgt hverri hænu í upphafi skotveiðitímabilsins en nú séu þeir um 6,5. Vandamálið hefur þó ekki aðeins áhrif á jólamat landsmanna, heldur á fálka, en þeirra helsta fæða eru rjúpur. Sex dauðir eða deyjandi fálkar fundust hér á landi í nóvember og telur fuglafræðingur góðar líkur á því að rjúpnaleysi sé um að kenna. Þrír fálkanna voru fullorðnir en óvenjulegt er að stálpaðir fálkar finnist dauðir. Áki segir mjög líklegt að rekja megi dauða fálkanna til rjúpnaleysis. „Mjög líklega, það er bara gangur náttúrunnar að þegar rjúpnastofninn fer niður þá fækkar í fálkastofninum. Hjá fálkunum nær það lágmarki svona tveimur árum eftir lágmarki hjá rjúpunni,“ segir Áki. Hægt er að hlusta á viðtalið við Áka í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Skotveiði Dýr Reykjavík síðdegis Rjúpa Fuglar Tengdar fréttir Telur fálkadauða mega rekja til rjúpnaleysis Sex dauðir eða deyjandi fálkar hafa fundist hér á landi í nóvember. Þrír ungar og þrír fullorðnir. Tveir þeirra hafa fundist á Akureyri. Fuglafræðingur telur góðar líkur á því að rjúpnaleysi sé um að kenna. 30. nóvember 2020 08:26 Síðasta helgin framundan til rjúpnaveiða Næsta helgi er síðasta helgin þar sem heimilt er að veiða rjúpur en tímabilið hefur verið æði misjafnt hjá mönnum. 26. nóvember 2020 10:40 Gæslan kölluð út vegna rjúpnaskyttu sem veiktist utan alfaraleiðar Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan tvö í dag til að sækja rjúpnaskyttu sem hafði veikst utan alfaraleiðar vestur af Kirkjubæjarklaustri. 21. nóvember 2020 17:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira
Telur fálkadauða mega rekja til rjúpnaleysis Sex dauðir eða deyjandi fálkar hafa fundist hér á landi í nóvember. Þrír ungar og þrír fullorðnir. Tveir þeirra hafa fundist á Akureyri. Fuglafræðingur telur góðar líkur á því að rjúpnaleysi sé um að kenna. 30. nóvember 2020 08:26
Síðasta helgin framundan til rjúpnaveiða Næsta helgi er síðasta helgin þar sem heimilt er að veiða rjúpur en tímabilið hefur verið æði misjafnt hjá mönnum. 26. nóvember 2020 10:40
Gæslan kölluð út vegna rjúpnaskyttu sem veiktist utan alfaraleiðar Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan tvö í dag til að sækja rjúpnaskyttu sem hafði veikst utan alfaraleiðar vestur af Kirkjubæjarklaustri. 21. nóvember 2020 17:10