Yfirdeild MDE kveður upp dóm í Landsréttarmálinu á morgun Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 19:16 Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu kveður upp dóm sinn í Landsréttarmálinu á morgun. vísir/epa Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu mun á morgun kveða upp dóm sinn í Landsréttarmálinu svokallaða, tíu mánuðum eftir að málflutningur fór fram í Strassbourg.
Óvissa er sögð ríkja um afdrif fleiri en þrjú hundruð dóma Landsréttar sem fjórir dómarar við réttinn hafa kveðið upp, staðfesti yfirdeild mannréttindadómstólsins dóm hans frá því í fyrra, sem var á þá leið að skipun dómara við Landsrétt hafi falið í sér brot gegn 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem kveðið er á um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, hafði þá skipað fjóra dómara við réttinn sem ekki voru á lista yfir þá sem hæfnisnefnd hafði metið hæfasta. Alþingi samþykkti tillögu Sigríðar um skipan dómaranna í júní árið 2017. Við afgreiðslu málsins á Alþingi voru greidd atkvæði um listann í heild, listann yfir alla þá dómara sem Sigríður Andersen lagði til að yrðu skipaðir við réttinn, en ekki um hvern og einn fyrir sig. Dómur Mannréttindadómstólsins leiddi á endanum til afsagnar Sigríðar sem ráðherra. Dómararnir fjórir tóku þátt í störfum nýja dómstigsins frá skipun þeirra 1. janúar árið 2018 og þar til dómur Mannréttindadómstólsins féll 13. mars í fyrra. Íslensk stjórnvöld óskuðu í framhaldi af þeim dómi, í maí 2019, eftir því að málið yrði tekið til endurskoðunar á vettvangi yfirdeildarinnar á þeim forsendum að málið teldist óvenjulegt og vekti upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu. Féllst dómurinn á þá beiðni í september í fyrra og fór málflutningur fram fyrir yfirdeildinni í febrúar á þessu ári. Fyrir fram var gert ráð fyrir að niðurstaða yfirdeildar MDE myndi liggja fyrir tólf til átján mánuðum eftir málflutning. Sá dagur rennur upp á morgun, á fullveldisdaginn 1. desember, eða aðeins um tíu mánuðum eftir að málið var flutt í yfirdeild.
Landsréttarmálið Dómstólar Mannréttindadómstóll Evrópu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira