„Ekkert grín að taka þetta svona tvö ár í röð“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. september 2022 20:01 Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, var sátt með sigurinn og að tryggja Íslandsmeistaratitilinn fyrir lokaumferðina. Vísir/Tjörvi Týr „Þetta verður aldrei þreytt, sem betur fer,“ sagði Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Vals, en liðið varði titil sinn með sigri á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta fyrr í dag.
Fyrir leik dagsins var vitað að sigur Vals myndi fella Aftureldingu sem og að tryggja liðinu sinn annan Íslandsmeistaratitil í röð. Það varð raunin en Valur vann 3-1 sigur og er nú bæði Íslands- og bikarmeistari. „Ég held að maður ætti að leggja skóna á hilluna ef maður væri orðin þreytt á þessu. Ótrúlega sætt og stolt af liðinu, það er ekkert grín að taka þetta svona tvö ár í röð og mjög langt síðan það var gert síðast hér á Íslandi,“ sagði fyrirliðinn og tók þar undir orð þjálfara liðsins sem nefndi sömu staðreynd í sínu viðtali. Mist Edvardsdóttir, miðvörður Vals, meiddist illa á hné í fyrri leik Vals og Slavía Prag í umspilinu um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Mist telur nokkuð ljóst að um krossbandsslit sé að ræða en það væru þá hennar fjórðu á ferlinum. „Það var gríðarlega mikið sjokk að missa Mist. Hún er mjög mikilvægur hlekkur innan vallar sem utan hjá okkur og við ákváðum að nálgast þennan leik þannig í dag að við værum að gera þetta fyrir hana. Hún er búin að vera einn af okkar bestu leikmönnum í sumar og við söknum hennar mikið en þó gleðiefni að við séum að fá Lillý [Rut Hlynsdóttir] til baka. En ótrúlega leiðinlegt að það gerist á kostnað Mistar. Við söknum hennar mikið og ákveðnar í að klára þetta fyrir hana.“ Um leik dagsins og framhaldið „Mér fannst leikurinn gæðalega séð ekki upp á marga fiska en bikar undir og þægilegt að fara inn í síðasta leikinn og þurfa ekki að vinna hann, þó við ætlum að sjálfsögðu að fara inn í hann til að vinna.“ „Við erum að fara út í fyrramálið og eigum erfiðan leik við Slavia í miðri viku og erum að koma heim tveimur dögum fyrir leikinn á laugardaginn svo það er alveg gott að vera búnar að tryggja þetta fyrir þann leik. Að þurfa ekki að fara vera inn í óþægilegar aðstæður til að klára titilinn þá svo við erum mjög sáttar að klára þetta í dag,“ sagði fyrirliði Íslandsmeistara Vals að lokum.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Valur Tengdar fréttir Umfjöllun: Afturelding - Valur 1-3 | Íslandsmeistarar annað árið í röð Valur varð í dag Íslandsmeistari annað árið í röð og í þrettánda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 1-3, í Mosfellsbænum í sautjándu og næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Á meðan Valskonur fögnuðu voru Mosfellingar súrir endar fallnir úr Bestu deildinni. 24. september 2022 16:45 „Þetta eru alltaf bestu bikararnir“ „Mér líður frábærlega, þetta er titill sem er erfitt að vinna. Að vinna annað árið í röð, það hefur ekki verið gert oft undanfarin ár þannig mér finnst þetta frábært hjá okkur,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, eftir að titillinn var endanlega kominn í hús. 24. september 2022 18:30 Íslandsmeistarinn Þórdís Hrönn: „Alveg sama hvort ég skori eða leggi upp svo lengi sem við vinnum“ „Mér líður svo vel, stórskrítið að taka ekki á móti bikarnum og svoleiðis núna en við bíðum spenntar eftir að taka á móti bikarnum í heimaleiknum 1. október. Þetta er bara geggjuð tilfinning,“ sagði sigurreif Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir eftir að Valur tryggði sér sinn annan Íslandsmeistaratitil á jafn mörgum árum með sigri á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. 24. september 2022 17:00 Mest lesið Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Völdu Albert í lið ársins Fótbolti Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Fótbolti „Spilum eins og það sé enginn morgundagur“ Körfubolti Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði „Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“ Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt Sjá meira
Umfjöllun: Afturelding - Valur 1-3 | Íslandsmeistarar annað árið í röð Valur varð í dag Íslandsmeistari annað árið í röð og í þrettánda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 1-3, í Mosfellsbænum í sautjándu og næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Á meðan Valskonur fögnuðu voru Mosfellingar súrir endar fallnir úr Bestu deildinni. 24. september 2022 16:45
„Þetta eru alltaf bestu bikararnir“ „Mér líður frábærlega, þetta er titill sem er erfitt að vinna. Að vinna annað árið í röð, það hefur ekki verið gert oft undanfarin ár þannig mér finnst þetta frábært hjá okkur,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, eftir að titillinn var endanlega kominn í hús. 24. september 2022 18:30
Íslandsmeistarinn Þórdís Hrönn: „Alveg sama hvort ég skori eða leggi upp svo lengi sem við vinnum“ „Mér líður svo vel, stórskrítið að taka ekki á móti bikarnum og svoleiðis núna en við bíðum spenntar eftir að taka á móti bikarnum í heimaleiknum 1. október. Þetta er bara geggjuð tilfinning,“ sagði sigurreif Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir eftir að Valur tryggði sér sinn annan Íslandsmeistaratitil á jafn mörgum árum með sigri á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. 24. september 2022 17:00