Emmsjé Gauti ávarpaði þjóðina: „Ekki unnt að halda Jülevenner“ Stefán Árni Pálsson skrifar 14. október 2020 12:24 Gauti ávarpaði þjóðina í hádeginu. „
Góðir Íslendingar. Ég hef ég óskað eftir því að fá að ávarpa ykkur á þessari stundu. Heimsbyggðin öll gengur nú í gegnum miklar samkomu takmarkanir og má jafna áhrifum þeirra á jólatónleikahald heimsins við krossfestingu Jesú Krists. Stórir og stöndugir jólatónleikar beggja vegna Atlantshafsins hafa orðið samkomutakmörkunum að bráð og ríkisstjórnir í mörgum löndum róa nú lífróður til að bjarga þeim jólatónleikum sem bjargað verður,“ sagði Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, í ávarpi sínu til þjóðarinnar í hádeginu í dag. Þar tilkynnti hann að ekki yrðu hefðbundnir jólatónleikar hjá honum ár en hann hefur síðastliðin ár staðið fyrir jólatónleikaröðinni Jülevenner. Vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sér hann sér ekki fært að standa fyrir jólatónleikum í ár. „Það er með harm í brjósti sem ég tilkynni að í ljósi aðstæðna verður ekki unnt að halda Jülevenner Emmsjé Gauta jólin 2020. Engin ábyrgur jólatónleikahaldari teflir framtíð þjóðar sinnar í slíka tvísýnu, jafnvel þótt fórna þurfi skemmtilegasta kvöldi ársins, Jülevenner Emmsjé Gauta.“ Hann segist hafa fengið stórfyrirtæki hér á landi til að aðstoða sig við að finna lausn á málinu og eru það fyrirtækin Tuborg, Dominos og verslunarkeðjan Iceland. Þar nefndi hann jólaplötu sem væri á leiðinni en hún ber heitið Það eru komin jül, sérstök Jülepizza verður til sölu og mun hún bragðast eins og hamborgari og sérstakt Jülevenner jóladagatal verði til sölu. „Góðir landsmenn. Verkefni stjórnvalda á næstu dögum er skýrt: að koma í veg fyrir að upplausnarástand skapist vegna þess að Jülevenner Emmsjé Gauta fellur niður. Miklu skiptir að við sýnum bæði stillingu og yfirvegun þá erfiðu daga sem nú fara í hönd. Á þann hátt, með íslenska bjartsýni, æðruleysi og samstöðu að vopni, munum við standa storminn af okkur og mæta sterkari til leiks á Jülevenner (Emmsjé Gauta) 2021. Guð blessi Jülevenner,“ sagði Gauti að lokum.
Jól Tónlist Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Lífið Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Lífið Alltaf með jager skot í töskunni Tíska og hönnun Stóðu upp og klöppuðu í fimm mínútur fyrir Ljósbroti Bíó og sjónvarp Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Segir sjálfsvígin sárust Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Lífið Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Lífið Fleiri fréttir „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Sjá meira