Handbolti

Magdeburg endurheimti toppsætið | Kristján og félagar enn án sigurs

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon var enn eina ferðina góður í liði Magdeburg í kvöld.
Ómar Ingi Magnússon var enn eina ferðina góður í liði Magdeburg í kvöld. Uwe Anspach/Getty

Ómar Ingi Magnússon og skoraði fjögur mörk þegar Magdeburg endurheimti toppsæti C-riðils í Evrópudeildinni í handbolta með sex marka sigri gegn Nexe, 32-26. Á sama tíma töpuðu Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC Aix gegn La Rioja, 33-26, en liðið hefur ekki enn unnið leik í Evrópudeildinni.

Magdeburg byrjaði sinn leik af miklum krafti og skoraði fimm af fyrstu sex mörku leiksins. Liðið náði mest átta marka forystu í fyrri hálfleik, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 19-14, Magdeburg í vil.

Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik, en sigur Magdeburg var þó aldrei í hættu. Liðið vann að lokum nokkuð öruggan  marka sigur, .

Eins og áður segir skoraði Ómar Ingi Magnússson fjögur mörk fyrir Magdeburg, ásamt því að leggja upp önnur sex fyrir liðsfélaga sína. Gísli Þorgeri Kristjánsson spilaði ekki með Magdeburg. 

Magdeburg situr nú á toppi C-riðils með níu stig eftir fimm leiki, en liðið hefur ekki enn tapað leik. Nexe situr hins vegar í þriðja sæti riðilsins með átta stig, en liðið hefur leikið einum leik meira en Magdeburg.

Þá töpuðu Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í franska liðinu PAUC Aix gegn La Rioja í sama riðli, 33-26. Kristján Örn skoraði fjögur mörk fyrir Aix, en liðið situr sem fastast á botni riðilsins með aðeins eitt stig eftir sex leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×