Bætti eigið heimsmet um 30 sekúndur

Eliud Kipchoge kemur í mark á nýju glæsilegu heimsmeti í …
Eliud Kipchoge kemur í mark á nýju glæsilegu heimsmeti í Berlín í dag. Ljósmynd/AFP

Eliud Kipchoge frá Kenía bætti eigið heimsmet í maraþonhlaupi um 30 sekúndur er hann kom í mark á 2:01:09 í Berlínarmaraþoninu í dag.

Tvöfaldi ólympíumeistarinn setti fyrra met einmitt í Berlín árið 2018. Hinn 37 ára gamli Kipchoge hefur sigrað fjórum sinnum í Berlínarmaraþoninu og þá á hann gullverðlaun í sex öðrum stórum maraþonhlaupum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert