Auðveldari gönguleið stikuð að gosinu framhjá kaðlinum Kristján Már Unnarsson skrifar 7. apríl 2021 23:37 Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður í Grindavík. Arnar Halldórsson Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt.
Hér má sjá hvernig gígarnir röðuðu sér eftir gossprungunni í dag. Næst til hægri er nyrsti gígurinn, þar sem sprungan opnaðist á annan í páskum. Í miðið er gígur sem opnaðist síðastliðna nótt. Fjær sjást svo elstu gígarnir í Geldingadölum.Arnar Halldórsson „Við bættum við endann á gönguleiðinni. Núna liggur hún frá sama upphafsstað og alveg að nýjustu gosstöðunum,“ sagði Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður frá Þorbirni í Grindavík, í viðtali í fréttum Stöðvar 2. -En þið sneiðið framhjá kaðlinum? „Já, við náum að sneiða framhjá kaðlinum. Við breyttum henni örlítið þannig að núna liggur hún svona 50 til 70 metra til austurs. Þannig að núna fer hún svona sneiðing upp hlíðina en fer ekki í kaðalinn sjálfan.“ Nyrsti gígurinn var orðinn glæsilegur í dag. Hraunið frá honum rennur niður í Meradali.Arnar Halldórsson -Er þetta þá auðveldari leið en kaðalleiðin? „Já, miklu auðveldari. Nú er allavega hægt að labba alla leið frá upphafi gönguleiðar og alveg upp að gosstöð án þess að þurfa að grípa í kaðal. Vissulega er verið að fara upp á fjall en það er miklu einfaldara,“ sagði Otti. Gísli Páll Pálsson, björgunarsveitarmaður úr Hveragerði og forstjóri Grundarheimilanna.Arnar Halldórsson Meðal björgunarsveitarmanna í vörslu á upphafsstað gönguleiðarinnar við Suðurstrandarveg í dag var Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna. „Við erum að vakta hérna svæðið. Ég er fyrir Hjálparsveit skáta í Hveragerði. Við erum bara að taka þátt í þessu verkefni. Þetta gefur okkur smápeninga í fjáröflun fyrir félagið. Og félagar okkar í sveitinni fá líka hluta af þessum tekjum í búnaðarkaup. Þannig að ég er bara í því að styrkja sveitina fyrir mig og mína félaga.“ Gísli Páll sagði langflesta ferðamenn vel búna. Þeir höfðu þó afskipti af tveimur í morgun sem voru illa búnir en fóru samt. Þeir skiluðu sér þó heilir á húfi til baka. Stefanía Ósk Ágústsdóttir að lokinni gosgöngu í dag.Arnar Halldórsson Framan af degi fóru fáir að gosstöðvunum. Þeim fjölgaði hins vegar eftir því sem leið á daginn og síðdegis máttu sjá um eitthundrað bíla á stæðum við Suðurstrandarveg. Meðal þeirra sem gengu að gosstöðvunum í dag voru þau Stefanía Ósk Ágústsdóttir og Pálmar Helgi Tómasson flugmaður. Pálmar Helgi Tómasson flugmaður hafði áður séð eldgos úr lofti en upplifði það í fyrsta sinn í dag að koma að því landleiðina fótgangandi.Arnar Halldórsson „Þetta var bara geggjað. Þetta var ógeðslega flott. Tókum með okkur smábita heim, hraunbita,“ sagði Stefanía. „Þetta var styttra en ég bjóst við, miðað við það sem ég hafði ímyndað mér,“ sagði Pálmar en þau sögðust hafa verið rúma þrjá tíma á göngunni, fram og til baka. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Grindavík Tengdar fréttir Framleiðni eldgossins tvöfaldast með nýju sprungunni Nýja gossprungan sem opnaðist í Meradölum í gær er í raun viðbót við gosið í Geldingadölum sem hefur þannig tvöfaldað framleiðslu sína. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir vel hugsanlegt að önnur gossprunga gæti opnast. 6. apríl 2021 20:00 Búið að lagfæra bröttu brekkuna þar sem margir hafa örmagnast Yfirlögregluþjónn segir að margir hafi örmagnast við bratta brekku sem fólk hefur þurft að ganga til að komast að gosstöðvunum. Lagfæringar hafi verið gerðar á leiðinni til að auðvelda yfirferð. Lokað er á gosstöðvunum í dag og til hádegis á morgun vegna veðurs. 3. apríl 2021 11:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Framleiðni eldgossins tvöfaldast með nýju sprungunni Nýja gossprungan sem opnaðist í Meradölum í gær er í raun viðbót við gosið í Geldingadölum sem hefur þannig tvöfaldað framleiðslu sína. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir vel hugsanlegt að önnur gossprunga gæti opnast. 6. apríl 2021 20:00
Búið að lagfæra bröttu brekkuna þar sem margir hafa örmagnast Yfirlögregluþjónn segir að margir hafi örmagnast við bratta brekku sem fólk hefur þurft að ganga til að komast að gosstöðvunum. Lagfæringar hafi verið gerðar á leiðinni til að auðvelda yfirferð. Lokað er á gosstöðvunum í dag og til hádegis á morgun vegna veðurs. 3. apríl 2021 11:10