Frábær árangur Tuchels gegn bestu stjórunum

Thomas Tuchel hefur gengið afar vel með Chelsea.
Thomas Tuchel hefur gengið afar vel með Chelsea. AFP

Thomas Tuchel hefur farið afar vel af stað sem knattspyrnustjóri Chelsea og hefur hann nú þegar unnið sigra gegn nokkrum af allra bestu knattspyrnustjórum heims.

Frá því að hann tók við Chelsea í lok janúar á þessu ári hefur Tuchel unnið lið undir stjórn Peps Guardiola (Manchester City), Jürgens Klopps (Liverpool), Josés Mourinhos (Tottenham Hotspur), Diegos Simeones (Atlético Madrid) og Carlos Ancelottis (Everton).

Ekki nóg með það því Chelsea hefur ekki fengið á sig eitt einasta mark í sigrunum gegn liðum þessara fræknu knattspyrnustjóra.

Chelsea vann í gær 1:0-sigur á Man City í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar og er þar með komið í úrslit keppninnar. Þá er liðið í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, þar sem ærið verkefni gegn Real Madrid undir stjórn Zinedines Zidanes bíður.

Auk þess er Chelsea í harðri baráttu um meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert