Býst við fjölgun í sóttkví: „Þetta er bakslag“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 18. apríl 2021 12:02 Víðir Reynisson í pallborðinu á Vísi VILHELM GUNNARSSON Þrettán greindust með kórónuveiruna í gær og voru átta utan sóttkvíar. Víðir Reynisson segir að um bakslag sé að ræða. Ekki séu öll kurl komin til grafar og býst hann við að þeim fjölgi sem þurfa í sóttkví.
Tíu af þeim sem smituðust í gær tengjast smiti sem kom upp á leikskólanum Jörfa í Reykjavík eftir að starfsmaður þar greindist með veiruna á föstudag. Smitið tengist landamærasmiti. Allt starfsfólk, öll börn og foreldrar þeirra verða í sóttkví fram á föstudag. Ekki öll kurl komin til grafar Af þeim þrettán sem greindust með kórónuveiruna í gær voru átta utan sóttkvíar. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna segir að um bakslag sé að ræða. „Ég met stöðuna náttúrulega bara ekki góða. Það er klárt hópsmit sem þarna er og það er langt frá því að öll kurl séu komin til grafar í því. Það eru í sjálfu sér bara þeir sem voru með einkenni búnir að fara í skimun. Þannig að dagurinn í dag á eftir að segja okkur ýmislegt um þetta og síðan þegar líður inn í sóttkvínna hjá þessum fjölmörgu einstaklingum sem þarna er um að ræða. Við gætum verið með ansi stóran hóp. Hann er þegar orðinn stór á þann mælikvarða sem við höfum verið að vinna með síðustu vikur.“ Hann segir ljóst að útsett fólk hafi ferðast nokkuð mikið um samfélagið síðustu daga. „Já það hefur verið töluverð hreyfing á fólki. Þannig að það getur verið ansi mikið undir og við erum bara að vinna í listum sem við erum að fá inn og gerum ráð fyrir að það fjölgi talsvert í sóttkví eftir því sem líður á daginn.“ Fólk skilar sér ekki í sýnatöku þrátt fyrir einkenni Allt of mikið beri á því að fólk með einkenni skili sér ekki í sýnatöku. „Núna síðustu daga hafa verið allt of, allt of margir sem við erum að fá inn sem hafa jafnvel verið með einkenni í mjög langan tíma án þess að fara í sýnatöku. Það eru stóru skilaboð dagsins að ef menn eru með minnstu einkenni: Fara í sýnatöku,“ sagði Víðir. Hann segir fólk farið að slaka of mikið á og brýnir fyrir fólki að fara í sýnatöku við minnstu einkenni. Tveir starfsmenn Íslensks sjávarfangs eru smitaðir af kórónuveirunni. Þetta staðfestir framkvæmdastjórinn Rúnar Björgvinsson í samtali við fréttastofu. Í gær var greint frá því að allir þeir hundrað starfsmenn fyrirtækisins hefðu þurft að fara í skimun vegna smitanna. Hluti af þeim fór í skimun í gær en restin fer í dag. Tugir í sóttkví vegna skólasmits Í gær var greint frá því að nemandi í öðrum bekk í Sæmundarskóla í Grafarholti hefði greinst með veiruna. Tugir eru komnir í sóttkví vegna smitsins. Víðir Reynisson segir að það verði að koma í ljós hvort herða þurfi aðgerðir á ný. Hvetur íbúa á svæðinu til að skrá sig í sóttkví Hann hvetur þá sem hafa umgengist starfsmenn eða börn á leikskólanum Jörfa síðustu viku að fara í skimun og á það við um börn jafnt sem fullorðna. Leikskólinn er staðsettur að Hæðargarði í póstnúmeri 108 Reykjavík. Einnig hvetur hann íbúa sem búa í næsta nágrenni leikskólans að fara í skimum. Mikið álag verður í sýnatöku í dag og því er mikilvægt að fólk skrái sig fyrirfram. „Það kemur inn á Heilsuveru í dag sérstakur valhnappur þegar þú velur sýnatöku þar um sýnatöku sem tengist leikskólanum Jörfa. Þannig að fólk getur smellt á það og komist þannig inn,“ sagði Víðir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Almannavarnir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira