Donald Trump forseti Bandaríkjanna er sagður ætla að flytjast til Flórída þegar hann lætur af störfum í næstu viku. Trump á tvær dætur og eru þær báðar sagðar vera að skoða eignir í Flórída um þessar mundir.
Hin 27 ára gamla Tiffany Trump, sem Trump á með annarri eiginkonu sinni Mörlu Maples, er að skoða sig um á fasteignamarkaðnum í Flórída. Tiffany er sögð vera að skoða lúxusíbúðir á South Beach í Miamí að því er fram kemur á vef Page Six. Hún býr núna á Setai-hótelinu í South Beach með kærasta sínum Michael Boulos en er þó sögð ætla kaupa íbúðina ein.
Hin 39 ára gamla Ivanka Trump og eiginmaður hennar Jared Kushner hafa starfað fyrir forsetann í Washington. Þau eru sögð hafa fest kaup á rándýrri landareign í Flórída á eyjunni Indian Creek. Á staðnum býr fátt en afar ríkt fólk. Á svæðinu er sérstakur sveitaklúbbur með golfklúbbi og öllu tilheyrandi. Á vef Page Six kemur fram að nóg sé að einn aðili í klúbbnum neiti inngöngu þeirra og eru hjónin ekki vinsæl eftir áhlaupið á þinghúsið á dögunum.