„Ég hélt að þetta væri grín“ Sindri Sverrisson skrifar 15. október 2021 13:00 Lionel Messi hlustar á Mauricio Pochettino á leik PSG gegn Lyon í haust. Getty/Mehdi Taamallah Mauricio Pochettino hélt að það væri verið að grínast í sér þegar honum var tjáð að hann myndi mögulega stýra Lionel Messi í liði PSG í vetur.
Pochettino fékk símtal frá Leonardo, íþróttastjóra PSG, þegar franska félagið komst á snoðir um það að mögulegt væri að klófesta Messi. Hann kom frítt til félagsins 10. ágúst eftir að Barcelona hafði lýst því yfir að félagið gæti ekki gert nýjan samning við Messi vegna alvarlegra fjárhagsörðugleika. Messi, sem sex sinnum hefur unnið Gullknöttinn sem besti leikmaður heims, hefur því leikið með PSG í vetur eftir að hafa allan sinn feril verið hjá Barcelona. „Leonardo hringdi í mig og sagði: „Það er möguleiki þarna. Myndir þú vilja nýta hann eða ekki?“ Það er gott að hann skyldi hringja í mig. Ég sagði við sjálfan mig: „Er þetta spurning?“ Ég hélt að þetta væri grín. Auðvitað,“ sagði Pochettino við ESPN. „Ég sagði við hann: „Þarf ég að fara og ná í hann? Á ég að keyra bílinn?“ Og þá byrjuðu samningaviðræðurnar. Eftir þetta hringdi Leonardo á hverju kvöldi og sagði mér frá stöðunni,“ sagði Pochettino. Héldu allir að Messi yrði áfram í Barcelona Messi, sem er 34 ára, vildi vera áfram hjá Barcelona og var búinn að samþykkja nýjan fimm ára samning við félagið. Ekki fékkst hins vegar leyfi fyrir þeim samningi enda hefði launakostnaður Barcelona einn og sér þá verið 10% hærri en tekjurnar. „Það reiknuðu allir með því að Messi yrði áfram í Barcelona. Mörg félög, ef ekki öll, dreymdi um að fá Messi þegar ljóst varð að hann færi á frjálsri sölu. En frá því að PSG sýndi áhuga þá vildi Leo koma hingað. Það gerðist allt mjög hratt. Við verðum að hrósa vinnunni hjá Leonardo, forseta félagsins og fulltrúum þess sem tókst á 2-3 dögum að klára samning við besta leikmann heims,“ sagði Pochettino. Hann var einnig spurður út í Kylian Mbappé en samningur hans við PSG rennur út næsta sumar. Pochettino sagði franska félagið að sjálfsögðu ætla að reyna sitt besta til að halda Mbappé hjá félaginu en Real Madrid sækir það stíft að fá hann í sínar raðir.
Franski boltinn Tengdar fréttir Messi: Eins og dómarinn geri þetta vísvitandi Brasilíumenn geta farið að bóka flug á HM í Katar eftir enn einn sigurinn í undankeppninni í Suður-Ameríku í nótt. Lionel Messi skaut á brasilískan dómara eftir 1-0 sigur Argentínu á Perú. 15. október 2021 07:31 Mest lesið Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Enski boltinn Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur Körfubolti Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Enski boltinn Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Körfubolti Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Enski boltinn Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti Kristófer Acox: „Fokkin passion“ Körfubolti Fleiri fréttir Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Spánarmeistarar Real skoruðu fimm „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Stig tekið af Ásdísi Karenu og félögum hennar „Við erum allar að læra þetta“ KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Napoli leiðir kapphlaupið en Juventus tilbúið að láta Genoa fá tvo fyrir Albert Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Lygileg toppbarátta í Danmörku Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Barcelona upp í annað sætið Sjá meira
Messi: Eins og dómarinn geri þetta vísvitandi Brasilíumenn geta farið að bóka flug á HM í Katar eftir enn einn sigurinn í undankeppninni í Suður-Ameríku í nótt. Lionel Messi skaut á brasilískan dómara eftir 1-0 sigur Argentínu á Perú. 15. október 2021 07:31
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti