„Hryðjuverkamaðurinn var einn af okkur“ Snorri Másson skrifar 22. júlí 2021 23:30 Í dag eru tíu ár liðin síðan hryðjuverkaárásirnar í Útey og Osló voru framdar. Getty/Julia Wäschenbach Tíu ár eru liðin í dag frá voðaverkunum í Osló og Útey, þar sem norskur hryðjuverkamaður myrti 77 manns, aðallega ungmenni í Norska verkamannaflokknum. Fórnarlambanna var minnst víða um heim og minnt á að sjónarmiðin sem hvöttu Anders Behring Breivik til ofbeldisverkanna séu síður en svo útdauð í nútímasamfélagi.
22. júlí 2011, við munum aldrei gleyma ykkur, var viðkvæðið í Noregi í dag. Þjóðin hefur varla um annað rætt en sameiginlega minninguna um þennan helsta sorgardag í sögu þjóðarinnar. Í fjölmiðlum þar er rætt við eftirlifendur árásanna sem segjast aldrei munu jafna sig, við aðstandendur sem segja að tíminn lækni ekki öll sár og við stjórnmálamenn, sem stóðu í stafni þegar þjóðin tókst á við áfallið á sínum tíma. Jens Stoltenberg, sem var forsætisráðherra landsins, segir 22. júlí 2011 hafa verið versta dag lífs síns. „Ódæðismaðurinn var hægriöfgamaður. Hann misnotaði kristin tákn. Hann ólst upp í okkar borgum, tilheyrði sömu trúarbrögðum og hafði sama húðlit og meirihluti fólks í þessu landi. Hann var einn af okkur,“ sagði Stoltenberg. „En hann var ekki einn af okkur, sem höfum lýðræðið í heiðri. Hann er einn þeirra sem telur sig eiga rétt á að drepa vegna pólitískra markmiða.“ Astrid Hoem, formaður ungliðahreyfingar Verkamannaflokksins, sagði að ekki hefði tekist að stoppa hatrið sem olli árásinni á sínum tíma. „Við höfum ekki stöðvað hatrið. Öfgahægristefna er enn til. Hryðjuverkamaðurinn var einn af okkur,“ sagði Hoem. Orðalagið „einn af okkur“, sem forsætisráðherrann fyrrverandi og Astrid Hoem nota bæði, er ekki úr lausu lofti gripið heldur vísar það að sínu leyti til áhrifamikillar bókar blaðamannsins Åsne Seierstad um hryðjuverkamanninn, sem bar þennan titil. Þau voru að berjast fyrir hugsjón Fórnarlömb Breivik voru flest í ungliðahreyfingu Norska verkamannaflokksins. Árásirnar í Útey höfðu strax áhrif víða um heim, meðal annars innan íslenska systurflokksins, Samfylkingarinnar. „Ég hef farið í mjörg margar sumarbúðir og eftir þennan hrikalega atburð þá var auðvitað mikil hræðsla. Maður mætti samt, en það var hertari öryggisgæsla,“ segir Sigrún Skaftadóttir, fyrrverandi alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna. Sigrún ávarpaði minningarathöfn við minningarlund í Vatnsmýrinni í dag, þar sem hún minnti eins og aðrir, á að hryðjuverkin hafi ekki verið framin í tómarúmi eða óvart, heldur hafi verið pólitísk og framin af öfgahægrimanni. „Bara aldrei gleyma þessum skelfilegu atburðum og þessari skelfilegu árás. Gleymum ekki þessum lífum, sem töpuðust þennan dag. Þau voru öll að berjast fyrir hugsjón,“ segir Sigrún.
Hryðjuverk í Útey Noregur Tengdar fréttir Minnast hryðjuverkaárásanna í Útey og Osló í Vatnsmýri Tíu ár eru í dag liðin frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Osló þar sem 77 féllu. Í tilefni þess hafa Ungir jafnaðarmenn í samstarfi við Norræna húsið skipulagt minningarathöfn sem fer fram í minningarlundinum í Vatnsmýri klukkan 16:30 í dag. 22. júlí 2021 13:09 Norski fjöldamorðinginn sækir um reynslulausn Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hyggst sækja um reynslulausn. Þetta staðfestir lögmaður hans í samtali við Verdens Gang. 16. september 2020 16:53 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira
Minnast hryðjuverkaárásanna í Útey og Osló í Vatnsmýri Tíu ár eru í dag liðin frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Osló þar sem 77 féllu. Í tilefni þess hafa Ungir jafnaðarmenn í samstarfi við Norræna húsið skipulagt minningarathöfn sem fer fram í minningarlundinum í Vatnsmýri klukkan 16:30 í dag. 22. júlí 2021 13:09
Norski fjöldamorðinginn sækir um reynslulausn Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hyggst sækja um reynslulausn. Þetta staðfestir lögmaður hans í samtali við Verdens Gang. 16. september 2020 16:53