Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Sunna Valgerðardóttir skrifar 25. janúar 2022 12:00 Vísir/Adelina Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt.
Svíar nota næst-mest á eftir Íslendingum af ávanabindandi lyfjum á Norðurlöndunum, en við notum samt 30 prósent meira heldur en þeir. Íslendingar eru langefstir þegar kemur að morfínskyldum verkjalyfjum, eða ópíóíðum, þunglyndislyfjum, róandi og örvandi lyfjum. Og hafa ber í huga að þetta eru tölur úr gagnagrunnum heilbrigðisyfirvalda sem byggja á ávísunum frá læknum, en nær ekki til ólöglega markaðarins. Banvænn kokteill Sigurður Örn Hektorsson, fíknigeðlæknir og fyrrverandi yfirlæknir fíknigeðdeildar Landspítalans, segir þessa lyfjaneyslu Íslendinga ekki bara flókna, heldur stórhættulega. „Ef fólk ætlar að hafa það hugfast þegar það er að neyta þessara efna, að nota saman þessi svokölluðu bensólyf, eins og valíum eða stesólíd eða xanax eða alprasólam, með ópíóíðum. Það er dálítið banvænn kokteill, því miður.” Fjallað var um hinn nýja ópíóíðafaraldur á Íslandi í fréttaskýringaþættinum Kompás í gær. Við vinnslu þáttarins var rætt við fjölda sérfræðinga um þróun faraldursins hér síðustu ár. Sumir sögðu það nokkra einföldun að tala um faraldur vegna ópíóíða eingöngu. Vandamálið væri enn stærra og flóknara og snúi að ofneyslu blandaðra lyfja. Og fjöllyfjanotkun með ávanabindandi lyfjum er alltaf að aukast. Við eigum okkur ekki kjörefni í neyslunni Sigurður Örn vann lengi í Kaliforníu í Bandaríkjunum, meðal annars í fangelsum. Fíklarnir þar eiga langflestir sitt kjörefni, eins og heróín, amfetamín eða róandi. „Á Íslandi er miklu meira um blandaða neyslu, þar sem er blandað saman kókaíni, ópíóíðum, bensólyfjum, kannabis, áfengi. Það gerir meðferðina ennþá flóknari, afeitrunin er flóknari og erfiðari, og líka held ég að þetta hafi þau áhrif að fólk fellur fyrr þegar það fellur,” segir hann. Fólk byrjar ekkert ósjaldan á því að drekka áfengi. Svo kemur kókaínið, svo bensó svo ópíóíðarnir. Þetta getur verið í öllum samsetningum, en þetta er mjög sláandi. „Því efnin þín eru út um allt. Það er svo mikið framboð og hætta á því að þegar þú byrjar að nota eitt efni þá ertu farinn að nota annað efnið og svo þriðja efnið og fjórða efnið. Og það getur endað illa.”
Kompás Heilbrigðismál Fíkn Lyf Tengdar fréttir Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25. janúar 2022 07:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Sjá meira
Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25. janúar 2022 07:00