Skólahald á Egilsstöðum fellur niður vegna smits

Smitið kom upp á Egilsstöðum en til þessa hafa mjög …
Smitið kom upp á Egilsstöðum en til þessa hafa mjög fá smit komið upp á Austurlandi. mbl.is

Staðfest smit kom upp á Austurlandi í dag. Þar sem hinn smitaði tengist tveimur grunnskólum á Egilsstöðum, Egilsstaðaskóla og Fellaskóla, fellur skólahald þar niður á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn Austurlands. 

„Viðkomandi er með væg einkenni og í einangrun en nýtur eftirlits og ráðgjafar COVID-teymis Landspítala og heilbrigðisstarfsfólks HSA,“ segir þar um hinn smitaða. 

Nú stendur smitrakning yfir. Gera má ráð fyrir að einhverjir þurfi í sóttkví vegna þessa en óljóst enn hversu margir og hverjir.

Foreldrum barna í Egilsstaðaskóla og Fellaskóla verða send skilaboð í kvöld þar sem niðurfelling skólahalds verður tilkynnt formlega. 

„Þess er vænst að ráðstöfunin varðandi niðurfellingu skólahalds verði einungis í gildi á morgun. Hún er tekin í öryggisskyni þar sem smitrakningu er ólokið. Um leið og mál skýrast munu þau kynnt á þessum vettvangi. Næstu skilaboð til foreldra frá skólastjórnendum ættu og að liggja fyrir eigi síðar en um hádegi á morgun,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka