Sex bílnúmerum stolið í Hafnarfirði

Lögregla hafði í nógu að snúast í dag.
Lögregla hafði í nógu að snúast í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þjófnað á sex númerum af bifreiðum í Hafnafirði í dag. 

Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í dag­bók lög­reglu.

Lyfjum stolið úr bát

Í miðbænum barst lögreglu tilkynning um innbrot í bát við Miðbakka. Þaðan var stolið verkfærum, talstöðum og lyfjum. 

Þá voru skemmdarverk unnin á fjórum til sex bifreiðum í miðbænum. Í sama hverfi var lögreglan kölluð til vegna innbrots á vinnusvæði þar sem fjöldi verkfæra var stolið. Einnig var aðili sem hrækti á lögreglumann sem var að handtaka hann. 

Í Árbænum var þjófnaður í verslun. Einnig var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir en ekkert var að sjá þegar lögreglu bar að garði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert