Segja Peng Shuai hafa verið á tennismóti tæpum þremur vikum eftir hvarf hennar Vésteinn Örn Pétursson skrifar 21. nóvember 2021 08:03 Lítið sem ekkert hefur spurst til Peng Shuai frá upphafi mánaðar. AP/Andy Brownbill Kínverska tenniskonan Peng Shuai, sem ekkert hafði spurst til eftir að hún sakaði fyrrverandi varaforseta Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, er sögð hafa verið viðstödd tennismót í Kína í dag. Alþjóðlega tennissamfélagið hafði kallað eftir því að kínversk stjórnvöld sýndu fram á að hún væri örugg og á lífi eftir að hún setti ásakanirnar fram á samfélagsmiðlum.
Í myndböndum sem birst hafa á kínverskum ríkisfjölmiðlum sést Peng á tennismóti barna í Kína, sem sagt er hafa farið fram í dag. Erlendum fjölmiðlum hefur þó ekki tekist að sannreyna dagsetningu myndbandsins. Peng Shuai showed up at the opening ceremony of a teenager tennis match final in Beijing on Sunday morning. Global Times photo reporter Cui Meng captured her at scene. pic.twitter.com/7wlBcTMgGy— Hu Xijin 胡锡进 (@HuXijin_GT) November 21, 2021 Alþjóðatennissamband kvenna hefur beitt sér fyrir því að kínversk stjórnvöld, sem eyddu ásökunum Peng út af samfélagsmiðlum auk ýmissa upplýsinga um hana, sýni með óyggjandi hætti fram á öryggi hennar. Breska ríkisútvarpið hefur eftir fulltrúa sambandsins að myndböndin sýni ekki með fullnægjandi hætti fram á öryggi hennar. Alls óljóst sé hvort Peng sé frjáls og eti tekið sínar eigin ákvarðanir. Í öðru myndbandi, sem einnig á að hafa verið tekið um helgina, sést Peng sitja og borða með þjálfara sínum og öðru fólki. I acquired two video clips, which show Peng Shuai was having dinner with her coach and friends in a restaurant. The video content clearly shows they are shot on Saturday Beijing time. pic.twitter.com/HxuwB5TfBk— Hu Xijin 胡锡进 (@HuXijin_GT) November 20, 2021 Stjórnvöld þegja þunnu hljóði Þann 2. nóvember síðastliðinn birti tenniskonan færslu á samfélagsmiðlinum Weibo, þar sem hún kvað Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta landsins, hafa nauðgað sér. Gaoli var varaforseti Kína frá árinu 2013 til 2018. Þann 14. nóvember, eða tæpum tveimur vikum eftir hvarf Shuai, sendi alþjóðatennissamband kvenna frá sér yfirlýsingu og krafðist þess að ásakanirnar yrðu rannsakaðar. Kínversk stjórnvöld hafa hins vegar lítið tjáð sig um málið að öðru leyti en að þau kannist raunar ekkert við það. Á fimmtudag birti kínverski ríkisfjölmiðillinn þá bréf sem sagt er vera frá Peng Shuai sjálfri, þar sem hún kveðst vera óhult og heima að hvíla sig. Tennissambandið birti þá aðra yfirlýsingu þar sem það dró sannleiksgildi bréfsins í efa og sagðist ætla að draga sig úr öllum mótum í Kína, komi ekki fram haldbærar sannanir um að Shuai sé örugg og að kínversk stjórnvöld bregðist við þessum ásökunum.
Kína Tennis Tengdar fréttir Krefjast svara um Peng Shuai Alþjóðatennissamband kvenna krefst þess að kínversk stjórnvöld bregðist við ásökunum tenniskonunnar Peng Shuai og að þau leggi fram sannanir um að hún sé örugg og á lífi. Að öðrum kosti muni sambandið ekki mæta til leiks á kínverskri grundu. 19. nóvember 2021 19:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Sjá meira
Krefjast svara um Peng Shuai Alþjóðatennissamband kvenna krefst þess að kínversk stjórnvöld bregðist við ásökunum tenniskonunnar Peng Shuai og að þau leggi fram sannanir um að hún sé örugg og á lífi. Að öðrum kosti muni sambandið ekki mæta til leiks á kínverskri grundu. 19. nóvember 2021 19:21