Erlent

Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi

Samúel Karl Ólason skrifar
Gabrielle Petito var myrt í Wyoming í haust.
Gabrielle Petito var myrt í Wyoming í haust. Getty/Thomas O'Neill

Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra.

Starfsmenn FBI hafa lokið rannsókn þeirra og komust þeir að þeirri niðurstöðu að enginn annar hefði komið að dauða Petito en Laundrie, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar.

Starfsmenn FBI hafa ekki gefið upp hvað hann hafði skrifað í skrifblokkina.

Málið vakti mikla athygli en þau fóru víðsvegar um Bandaríkin á sendiferðabíl og sögðu frá reisunni á samfélagsmiðlum, þar sem þau öfluðu sér margra fylgjenda. Laundrie, sem var 23 ára, sneri þó einn heim til foreldra sinna á Flórída þann 1. september í fyrra.

Brian Laundrie þegar hann og Gabrielle voru stöðvuð af lögregluþjónum í Utah.AP

Nokkrum dögum seinna tilkynntu foreldrar Petito (22) að hennar væri saknað.

Lík hennar fannst Í Wyoming þann 18. september. Rannsókn leiddi í ljós að hún hafði verið kyrkt til dauða þremur vikum áður. Einnig fundust áverkar á höfði hennar.

Í millitíðinni hafði Laundrie sent skilaboð úr síma sínum og síma Petito með því markmiði að reyna að hylma yfir dauða hennar.

Skömmu eftir að Laundrie sneri aftur til Flórída hvarf hann aftur. Foreldrar hans fundu svo í október mun sem var í eigu hans skammt frá heimili þeirra. Frekari leit leiddi svo lík Laundrie í ljós en hann hafði svipt sig lífi.


Tengdar fréttir

Kærasti Petito svipti sig lífi

Brian Laundrie, kærasti Gabrielle Petito sem fannst látin eftir ferðalag parsins í september, svipti sig lífi, að sögn lögmanns Laundrie-fjölskyldunnar. Hann lét sig hverfa eftir að hann sneri einn heim úr ferðalaginu en lík hans fannst í síðasta mánuði.

Brian Laundrie sá sem fannst látinn í gær

Líkamsleifar sem fundust á náttúruverndarsvæðinu Myakkahatchee Creek í Flórída í gær eru sagðar tilheyra Brian Laundrie, sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur leitað í rúman mánuð í tengslum við morðið á kærustu hans, Gabrielle Petito. 

Staðfesta dánarorsök Petito

Dánarstjóri í Wyoming-ríki Bandaríkjanna hefur úrskurðað að dánarorsök Gabrielle Petito, ungrar konu sem fannst myrt í ríkinu, lést af völdum kyrkingar.

Al­ríkis­lög­reglan leitar að unnusta Petito

Alríkislögregla Bandaríkjanna hefur óskað eftir aðstoð almennings til að finna unnusta hinnar 22 ára gömlu Gabrielle Petito, sem fannst myrt í þjóðgarði í Wyoming á dögunum. Dánardómstjóri skar um það í gær að Petito hafi verið ráðinn bani.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×