Fylgjast með hvort kvika sé á flæði undir Krýsuvík Kristján Már Unnarsson skrifar 21. október 2020 21:31 Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Reykjanesskaginn heldur áfram að nötra og hafa sjö skjálftar í dag mælst milli þrjú og fjögur stig. Jarðvísindamenn sjá þó skýr merki þess að dregið hafi úr hrinunni eftir stóra skjálftann í gær. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Vegagerðin opnaði Djúpavatnsleið á ný í dag en hún lokaðist þegar grjót féllu á veginn í skjálftanum. Vinnuvél Vegagerðarinnar á Djúpavatnsleið í Reykjanesfjallgarði í dag.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Vegagerðarmenn létu ekki duga að hreinsa burt grjótið sem féll á veginn í gær heldur færðu í leiðinni nokkra steina sem þóttu standa of nærri vegkantinum. Sá sem stýrði hjólaskóflunni, Einar Bjarnason, hafði aldrei áður þurft að moka eftir jarðskjálfta „Nei, aldrei. Það er gaman að þessu annað slagið,“ sagði Einar, en hnullungarnir voru 7-8 talsins sem lokuðu veginum og aðallega á tveimur stöðum. Einar Bjarnason, flokksstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnarfirði.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Einar, sem er flokksstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnarfirði, notaði jafnframt tækifærið til að hreinsa burt steina sem áður höfðu fallið í skjálftum fyrri tíma. Annar Vegagerðarmaður, Jens Matthíasson, kom svo akandi Djúpavatnsleið frá Suðurstrandarvegi á móti Einari. „Ég var að athuga hvort það væru fleiri steinar hér á leiðinni eða hvort það væri eitthvað að veginum, frá Suðurstrandavegi og hingað,“ sagði Jens, en kvaðst aðeins hafa tínt smásteina af veginum hér og þar. „En engir stórir nema bara undir þessari hlíð sem hann var að plokka upp áðan,“ sagði Jens. Jens Matthíasson, flokksstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnarfirði.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Víða nærri upptakasvæði stóra skjálftans í gær sjást merki eftir grjóthrun eins og í hlíð Norðlingaháls. Virknin hefur færst vestar í dag, nær Grindavík. Við Fagradalsfjall urðu til að mynda tveir skjálftar um sjöleytið í morgun sem fundust meðal annars á Reykjavíkursvæðinu, 3,8 og 3,6 stig að stærð, að sögn Kristínar Jónsdóttur, jarðskjálftafræðings á Veðurstofu Íslands. „En annars hefur bara dregið mjög mikið úr hrinunni,“ segir Kristín. Hún útlokar þó ekki annan stóran skjálfta næstu daga. „En svona samt - þessi hegðun sem við erum að fylgjast með núna er má segja týpísk hegðun fyrir kerfi sem er að jafna sig eftir átök. Þannig að við skulum bara vona að jörðin taki tíma í það núna aðeins að jafna sig eftir þetta.“ Horft frá Krýsuvík til Seltúns og Kleifarvatns í gær.Arnar Halldórsson Ein stærsta spurningin er hvort hræringunum á Reykjanesi fylgi landris með kvikuflæði. Kristín segir að mjög greinileg innskot hafi komið við fjallið Þorbjörn fyrr á árinu. „En ógreinilegri hreyfingar við Reykjanes en alveg hugsanlegt að þar hafi líka verið innskotavirkni. Og núna við Krýsuvík, eitthvað sem við erum ennþá að fylgjast með.“ Merki um kvikuflæði undir Krýsuvík eru þó óljós. „Það er svona kannski frekar erfitt að túlka þau og segja alveg af eða á hvort þetta sé til dæmis kvika eða ekki,“ segir Kristín Jónsdóttir. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos og jarðhræringar Samgöngur Jarðhræringar á Reykjanesi Hafnarfjörður Grindavík Almannavarnir Tengdar fréttir Líkur á frekari jarðskjálftum nær höfuðborgarsvæðinu Líkur eru á frekari jarðskjálftum á suðvesturhorninu á næstu árum og þá sérstaklega jarðskjálfta með upptök við Brennisteinsfjöll, sem er töluvert nær höfuðborgarsvæðinu en skjálftinn sem varð í gær. 21. október 2020 18:43 Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta yfir þremur og jafnvel stærri Eftirskjálftar eftir stóra skjálftann í gær eru orðnir hátt í 2000 talsins; frá miðnætti hafa þeir verið á milli 700 og 800. 21. október 2020 10:39 Krýsuvík næst upptökum og þar fór fólkið hlaupandi út Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins laust fyrir klukkan tvö í dag mældist 5,6 stig og var með upptök skammt vestur af Krýsuvík. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast en í Krýsuvík hljóp fólk út og þar hrundi úr fjöllum. 20. október 2020 21:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið Sjá meira
Líkur á frekari jarðskjálftum nær höfuðborgarsvæðinu Líkur eru á frekari jarðskjálftum á suðvesturhorninu á næstu árum og þá sérstaklega jarðskjálfta með upptök við Brennisteinsfjöll, sem er töluvert nær höfuðborgarsvæðinu en skjálftinn sem varð í gær. 21. október 2020 18:43
Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta yfir þremur og jafnvel stærri Eftirskjálftar eftir stóra skjálftann í gær eru orðnir hátt í 2000 talsins; frá miðnætti hafa þeir verið á milli 700 og 800. 21. október 2020 10:39
Krýsuvík næst upptökum og þar fór fólkið hlaupandi út Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins laust fyrir klukkan tvö í dag mældist 5,6 stig og var með upptök skammt vestur af Krýsuvík. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast en í Krýsuvík hljóp fólk út og þar hrundi úr fjöllum. 20. október 2020 21:52