Telja Slot hafa verið að nota Tottenham Sindri Sverrisson skrifar 25. maí 2023 11:30 Arne Slot stýrði Feyenoord til hollenska meistaratitilsins. Getty/Dennis Bresser Nú er orðið ljóst að Arne Slot verður ekki næsti knattspyrnustjóri Tottenham en hann hafði verið orðaður við starfið. Slot segist vilja halda áfram starfi sínu hjá Feyenoord sem hann gerði að hollenskum meistara í ár.
Slot fundaði með forráðamönnum Feyenoord í gær varðandi framlengingu á samningi sínum hjá félaginu og er fastlega búist við því að hann stýri liðinu áfram. Arne Slot will sign a new contract at Feyenoord very soon. The agreement has been reached during yesterday s meeting and it will be sealed soon. #Feyenoord #THFCSlot decision won t change. He s set to stay and won t join Tottenham. pic.twitter.com/SM8M9oNT9m— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 25, 2023 Sky Sports hefur eftir heimildum að forráðamenn Tottenham telji Slot eingöngu hafa verið að nota áhuga enska félagsins til að fá betri samning hjá Feyenoord, en talið er fullvíst að hann skrifi undir nýjan samning við félagið. Sky segir einnig að áhugi Tottenham á að fá Slot hafi horfið þegar í ljós kom hver kostnaðurinn yrði við að losa hann frá Feyenoord. Komið hafi í ljós að klásúla í samningi hans, um að hann væri falur fyrir fimm milljónir punda, yrði ekki virk fyrr en á næsta ári en að það myndi kosta um 10 milljónir punda að fá hann núna, auk fimm milljóna punda fyrir starfslið hans. Slot tjáði sig um sín mál í dag og sagði: „Ég hef heyrt mikið af orðrómi um áhuga á mér. Þó að ég sé þakklátur fyrir það þá er það minn vilji að halda kyrru fyrir hjá Feyenoord og halda áfram því starfi sem við höfum unnið síðastliðið ár.“ Slot sagði sömuleiðis að engar viðræður hefðu átt sér stað við annað félag en Feyenoord og að viðræður sínar við félagið hefðu eingöngu verið varðandi framlengingu á samningi. Biðin eftir nýjum stjóra lengist Tottenham er í leit að framtíðarstjóra eftir að Antonio Conte var rekinn í mars. Cristian Stellini var ráðinn til bráðabirgða en rekinn eftir aðeins fjóra leiki, og Ryan Mason tók þá við til að stýra liðinu út leiktíðina. Tottenham er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur aðeins fengið fjögur stig úr sex leikjum undir stjórn Mason. Liðið mætir Leeds í lokaumferð deildarinnar á sunnudag. Á meðal þeirra sem orðaðir hafa verið við stjórastarfið hjá Tottenham er Julian Nagelsmann, fyrrverandi stjóri Bayern München, en engar viðræður fóru í gang við hann. Púlsinn var tekinn á Roberto de Zerbi, sem er búinn að stýra Brighton inn í Evrópudeildina, samkvæmt blaðamanninum Guillem Balague. Tottenham var einnig orðað við Vincent Kompany, stjóra Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá Burnley, áður en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Fleiri fréttir Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti