Diljá sú sjöunda í röðinni í Liverpool

Diljá Pétursdóttir verður sú sjöunda í röðinni til að stíga …
Diljá Pétursdóttir verður sú sjöunda í röðinni til að stíga á sviðið í Liverpool. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nú liggur ljóst fyrir að Diljá Pétursdóttir með lagið Power, framlag Íslendinga til Eurovision, verður sjöundi keppandinn til að stíga á svið þegar seinni leggur undanúrslita Eurovision fer fram 11. maí í Liverpool á Englandi.

Þetta kemur fram í færslu frá Eurovision á Instagram. 

Atriði Danmerkur opnar þá keppnina en atriði Ástralíu lokar henni og er númer sextán í röðinni. Diljá hefur farið upp og niður í spám veðbanka síðustu vikur en þeim ber þó ekki öllum saman um hvar söngkonan kraftmikla mun enda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert