„Hefði átt að hætta um leið og Floyd hætti að berjast á móti“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. apríl 2021 23:30 Þessi mynd af George Floyd hangir fyrir utan dómshúsið í Minneapolis þar sem réttarhöldin fara fram. AP/Jim Mone Lögreglustjórinn í Minneapolis sagði í vitnastúku í dag að Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumaðurinn sem er ákærður fyrir að hafa myrt George Floyd, hafi brotið reglur lögreglunnar um valdbeitingu við handtökuna á Floyd.
Medaria Arradondo, lögreglustjóri, sagði að aðferðin sem Chauvin beitti þegar hann hélt Floyd niðri hafi ekki verið í samræmi við þjálfun lögreglumanna og „alls ekki í samræmi við siðferðisleg gildi okkar.“ Chauvin og þrír lögreglumenn til viðbótar voru látnir taka pokann sinn í maí í fyrra eftir að Floyd dó í umsjá þeirra. Floyd dó við handtöku en Chauvin, sem er sá eini sem hefur verið ákærður vegna dauða hans, kraup á hálsi Floyds í níu mínútur þrátt fyrir ítrekuð mótmæli Floyds sem sagðist ekki geta andað. Dauði Floyd fleytti af stað mótmælabylgju sem teygði anga sína um öll Bandaríkin og víðar. „Það samræmist ekki á nokkurn hátt okkar stefnu“ Dagurinn í dag er sá sjötti sem réttarhöldin yfir Chauvin standa yfir. Talið er að þau geti varið í allt að mánuð en þegar hefur fjöldi fólks vitnað fyrir rétti, þar á meðal bráðaliðarnir sem mættu á vettvang handtökunnar. Arradondo lýsti í dag þjálfuninni sem lögreglumenn hljóta þegar að valdbeitingu við handtöku kemur. „Um leið og Floyd hætti að berjast á móti og sannarlega þegar það sást að hann var þjakaður og reyndi að tjá það, ætti hann að hafa hætt,“ sagði Arradondo og vísaði til valdbeitingu Chauvins. Hann sagði að Chauvin hafi greinilega kropið á hálsi Floyds eftir að hann hætti að berjast á móti og meira að segja eftir að hann hætti að hreyfa sig. „Það samræmist ekki á nokkurn hátt okkar stefnu, er ekki hluti af þjálfun hjá okkur og er alls ekki í samræmi við siðareglur okkar,“ sagði Arradondo.
Dauði George Floyd Bandaríkin Tengdar fréttir Sýndu nýjar myndir af handtöku Floyds Ákæruvaldið í réttarhöldunum yfir Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumanninum sem ákærður hefur verið fyrir að hafa banað George Floyd þegar hann kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur, sýndi kviðdómi í gær myndbönd af handtöku og dauða Floyds sem tekin voru á búkmyndavélar lögreglumanna á vettvangi. 1. apríl 2021 07:59 Lýsti því hvernig Floyd grátbað um að lífi hans yrði þyrmt Darnella Frazier, unglingsstúlkan sem tók myndband af George Floyd á meðan lögregluþjónninn Derek Chauvin þrýsti hné sínu að hálsi hans með þeim afleiðingum að Floyd lést, segir að hann hafi grátbeðið um að lífi sínu yrði þyrmt. 31. mars 2021 08:55 „Derek Chauvin sveik skjöld sinn“ Saksóknarar og verjendur í máli bandaríska fyrrum lögreglumannsins Dereks Chauvin, sem er ákærður fyrir morðið á George Floyd, fluttu upphafsræður sínar fyrir kviðdómi í Minneapolis í dag. Réttarhöldin yfir Chauvin eru hafin, tíu mánuðum eftir að Floyd lést þegar Chauvin kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur. 29. mars 2021 23:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Fleiri fréttir Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Sjá meira
Sýndu nýjar myndir af handtöku Floyds Ákæruvaldið í réttarhöldunum yfir Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumanninum sem ákærður hefur verið fyrir að hafa banað George Floyd þegar hann kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur, sýndi kviðdómi í gær myndbönd af handtöku og dauða Floyds sem tekin voru á búkmyndavélar lögreglumanna á vettvangi. 1. apríl 2021 07:59
Lýsti því hvernig Floyd grátbað um að lífi hans yrði þyrmt Darnella Frazier, unglingsstúlkan sem tók myndband af George Floyd á meðan lögregluþjónninn Derek Chauvin þrýsti hné sínu að hálsi hans með þeim afleiðingum að Floyd lést, segir að hann hafi grátbeðið um að lífi sínu yrði þyrmt. 31. mars 2021 08:55
„Derek Chauvin sveik skjöld sinn“ Saksóknarar og verjendur í máli bandaríska fyrrum lögreglumannsins Dereks Chauvin, sem er ákærður fyrir morðið á George Floyd, fluttu upphafsræður sínar fyrir kviðdómi í Minneapolis í dag. Réttarhöldin yfir Chauvin eru hafin, tíu mánuðum eftir að Floyd lést þegar Chauvin kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur. 29. mars 2021 23:23