Alma og Þórólfur slökktu elda

Þau Alma Möller og Þórólfur Guðnason hófu árlegt eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) í dag þegar þau fengu leiðsögn í notkun á slökkvibúnaði og slökktu elda í kjölfarið. Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn var þeim þó til halds og trausts í stað Víðis Reynissonar sem var fjarri góðu gamni. 

Í tilkynningu frá LSS vegna átaksins kemur fram að slökkviliðsmenn geta ekki heimsótt grunnskóla í ár og rætt við börn um brunavarnir vegna faraldurs kórónuveirunnar. 

Tilkynningin í heild sinni.

Allt of mörg heimili berskjölduð fyrir eldsvoðum

„Ný könnun Gallup um eldvarnir á heimilum sýnir að alltof mörg heimili eru vanbúin nauðsynlegum eldvarnabúnaði og þar með berskjölduð fyrir eldsvoðum. Þetta á til dæmis við um mörg heimili í höfuðborginni, heimili unga fólksins og íbúðir í leiguhúsnæði. Það er brýnna en nokkru sinni að hvetja fólk til að efla eldvarnir heimilisins, ekki síst í ljósi þess að það sem af er ári hafa fleiri látist í eldsvoðum hér á landi en dæmi eru um í áratugi, langt umfram það sem gerist í meðalári. Veirufaraldurinn gerir okkur vissulega erfitt fyrir að þessu sinni en við teljum að fræðsla um eldvarnir eigi erindi við almenning sem aldrei fyrr,“ segir Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, en eldvarnaátak landssambandsins fer fram um allt land á næstu vikum.

Slökkviliðin beina fræðslu um eldvarnir að nemendum í 3. bekk grunnskóla og fjölskyldum þeirra. Lögð er áhersla á að heimili séu búin eldvarnabúnaði á borð við reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi:

  • Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum.
  • Slökkvitæki á að vera við helstu flóttaleið.
  • Eldvarnateppi á að vera á sýnilegum stað í eldhúsi.
  • Tryggja þarf öllum á heimilinu að minnsta kosti tvær flóttaleiðir.
  • Allir þekki neyðarnúmerið, 112, líka börnin.

Að jafnaði fer eldvarnaátakið þannig fram að slökkviliðsmenn heimsækja skóla um land allt og ræða við börnin í 3. bekk um eldvarnir. Veirufaraldurinn kemur nú víða í veg fyrir heimsóknir í skóla og munu skólarnir í mörgum tilvikum sjá sjálfir um fræðsluna að þessu sinni. Börnin fá að sjá teiknimyndina um Loga og Glóð og baráttu þeirra við Brennu-Varg. Þau fá eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins, endurskinsborða frá Neyðarlínunni, 112, og fleira.

Þeim gefst jafnframt kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni en svörum er nú skilað með rafrænum hætti í fyrsta sinn á lsos.is/eldvarnaatak. Vegleg verðlaun eru í boði og verða þau afhent á 112-deginum, 11. febrúar 2021.

Samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarnabandalagið í haust eru heimilin í landinu mjög misjafnlega vel varin gagnvart eldsvoðum. Almennt sýna kannanir sem Gallup hefur gert fyrir Eldvarnabandalagið og LSS að heimilin efla eldvarnir jafnt og þétt. Frá þessu eru þó töluverð frávik. Könnun Gallup sýnir til dæmis að eldvarnir á heimilum í Reykjavík eru mun lakari en á heimilum utan höfuðborgarsvæðisins. Og fleiri hópar þurfa að huga betur að eldvörnum heimilisins:

  • Fólk á aldrinum 25-34 ára er mun ólíklegra en aðrir til að hafa eldvarnateppi og slökkvitæki á heimilinu. Eldvarnateppi eru að meðaltali á 64,3% heimila en aðeins hjá 48 prósentum í umræddum aldurshópi.
  • Könnunin leiðir í ljós að eldvarnir í fjölbýlishúsum eru lakari en almennt gerist og þá sérstaklega í stærri fjölbýlishúsum.
  • Íbúar í leiguhúsnæði eru sem fyrr mun verr búnir undir eldsvoða en aðrir.


Könnun Gallup leiðir í ljós að í 45 prósent íbúða í leiguhúsnæði er enginn eða aðeins einn reykskynjari. Sambærilegt hlutfall á landsvísu er 28 prósent.

Helstu styrktaraðilar Eldvarnaátaksins eru Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 112, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, TM og slökkviliðin í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert