Gæti orðið fyrsta undankeppnin í meira en fjörutíu ár án heimasigurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2021 12:31 Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í íslenska landsliðinu hafa uppskorið lítið á Laugardalsvellinum í þessari undankeppni. Vísir/Hulda Margrét Í kvöld er síðasti möguleikinn fyrir íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu að vinna leik á Laugardalsvellinum í undankeppni HM í Katar 2022. Íslenska liðið tekur á móti Liechtenstein sem jafnframt verður fimmti heimaleikur liðsins í röð í þessari undankeppni. Íslensku strákarnir hafa fagnað mörgum sigrum í Laugardalnum undanfarin ár en svo hefur ekki verið í þessari fyrstu undankeppni undir stjórn þeirra Arnars Þórs Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen. Í síðustu tveimur undankeppnum (HM 2018 og EM 2020) unnust níu af tíu heimaleikjum liðsins og tíundi heimasigurinn kom síðan í umpilsleik á móti Rúmeníu. Nú er staðan allt önnur og liðið bíður enn eftir fyrsta heimasigri sínum. Íslenska liðið hefur aðeins náð tveimur stigum samanlagt út úr fjórum fyrstu heimaleikjum sínum og er eins og er með fleiri stig á útivelli en á heimavelli í keppninni. Íslensku strákarnir náðu að jafna metin á móti Norður-Makedóníu og Armeníu en töpuðu heimaleikjum sínum á móti Þýskalandi og Rúmeníu. Takist liðinu ekki að vinna lið Liechtenstein í kvöld þá yrði þetta fyrsta undankeppnin í meira en fjörutíu ár þar sem liðið nær ekki að vinna heimaleik. Íslenska liðið tapaði öllum sínum heimaleikjum í undankeppni EM 1980 en íslenska liðið var þá í riðli með Hollandi, Póllandi, Austur-Þýskalandi og Sviss. Heimaleikirnir töpuðust með markatölunni 1-11. Þegar kemur að undankeppnum heimsmeistaramótsins þá hefur íslenska liðið unnið að minnsta kosti einn leik allar götur síðan í undankeppni HM 1974. Þá spilaði íslenska liðið reyndar aðeins einn heimaleik hér á landi en heimaleikirnir á móti Hollandi og Belgíu voru báðir spilaðir erlendis. Heimaleikir Íslands í undankeppnum HM 2018 og EM 2020: 9 sigrar í 10 leikjum 1 tapleikur Markatala: +16 (18-4) - Heimaleikir Íslands í undankeppni HM 2022: 0 sigrar í 4 leikjum 2 tapleikir Markatala: -6 (3-9) HM 2022 í Katar Laugardalsvöllur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Sjá meira
Íslenska liðið tekur á móti Liechtenstein sem jafnframt verður fimmti heimaleikur liðsins í röð í þessari undankeppni. Íslensku strákarnir hafa fagnað mörgum sigrum í Laugardalnum undanfarin ár en svo hefur ekki verið í þessari fyrstu undankeppni undir stjórn þeirra Arnars Þórs Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen. Í síðustu tveimur undankeppnum (HM 2018 og EM 2020) unnust níu af tíu heimaleikjum liðsins og tíundi heimasigurinn kom síðan í umpilsleik á móti Rúmeníu. Nú er staðan allt önnur og liðið bíður enn eftir fyrsta heimasigri sínum. Íslenska liðið hefur aðeins náð tveimur stigum samanlagt út úr fjórum fyrstu heimaleikjum sínum og er eins og er með fleiri stig á útivelli en á heimavelli í keppninni. Íslensku strákarnir náðu að jafna metin á móti Norður-Makedóníu og Armeníu en töpuðu heimaleikjum sínum á móti Þýskalandi og Rúmeníu. Takist liðinu ekki að vinna lið Liechtenstein í kvöld þá yrði þetta fyrsta undankeppnin í meira en fjörutíu ár þar sem liðið nær ekki að vinna heimaleik. Íslenska liðið tapaði öllum sínum heimaleikjum í undankeppni EM 1980 en íslenska liðið var þá í riðli með Hollandi, Póllandi, Austur-Þýskalandi og Sviss. Heimaleikirnir töpuðust með markatölunni 1-11. Þegar kemur að undankeppnum heimsmeistaramótsins þá hefur íslenska liðið unnið að minnsta kosti einn leik allar götur síðan í undankeppni HM 1974. Þá spilaði íslenska liðið reyndar aðeins einn heimaleik hér á landi en heimaleikirnir á móti Hollandi og Belgíu voru báðir spilaðir erlendis. Heimaleikir Íslands í undankeppnum HM 2018 og EM 2020: 9 sigrar í 10 leikjum 1 tapleikur Markatala: +16 (18-4) - Heimaleikir Íslands í undankeppni HM 2022: 0 sigrar í 4 leikjum 2 tapleikir Markatala: -6 (3-9)
Heimaleikir Íslands í undankeppnum HM 2018 og EM 2020: 9 sigrar í 10 leikjum 1 tapleikur Markatala: +16 (18-4) - Heimaleikir Íslands í undankeppni HM 2022: 0 sigrar í 4 leikjum 2 tapleikir Markatala: -6 (3-9)
HM 2022 í Katar Laugardalsvöllur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti