Tvær til viðbótar skrifa undir á Hlíðarenda

Ída Margrét Stefánsdóttir í leik gegn Skuru.
Ída Margrét Stefánsdóttir í leik gegn Skuru. mbl.is/Kristinn Magnússon

Handknattleiksdeild Vals heldur áfram þeirri vinnu að halda leikmönnum í kvennaliðinu hjá félaginu næstu árin og í dag skrifuðu tveir leikmenn til viðbótar undir samning.

Ída Margrét Stefánsdóttir og Lilja Ágústsdóttir skrifuðu báðar undir samninga sem gilda fram á vorið 2024.

Báðar hafa þeir leikið fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands og hafa raunar báðar verið fyrirliðar í yngri landsliðunum.

Valsmenn greindu frá þessu í dag en í vikunni hafa sex leikmenn kvennaliðs Vals skrifað undir nýja samninga við félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert