Ragnhildur og Sigurður unnu fyrsta mótið

Ragn­hild­ur Krist­ins­dótt­ir fagnaði sigri.
Ragn­hild­ur Krist­ins­dótt­ir fagnaði sigri. mbl.is/Óttar Geirsson

Ragnhildur Kristinsdóttir og Sigurður Arnar Garðarsson fögnuðu sigri á Leirumótinu, fyrsta stigamóti Golfsambands Íslands, en leikið var á Hólmsvelli um helgina.

Atvinnukylfingurinn Ragnhildur, sem keppnir fyrir GR, hafði mikla yfirburði í kvennaflokki. Hún lauk leik á níu höggum yfir pari og spilaði mjög stöðugt golf.

Berglind Björnsdóttir úr GR varð önnur á 18 höggum yfir pari og Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss varð þriðja á 19 yfir pari.

Spennan var meiri í karlaflokki því Sigurður, sem keppir fyrir GKG, lauk leik á þremur höggum undir pari, einu höggi á undan Birgi Birni Magnússyni úr Keili sem varð annar. Íslandsmeistarinn Kristján Þór Einarsson hjá GM varð þriðji á einu höggi yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert