Lánaður út eftir að hafa skorað

Þorlákur Breki Þ. Baxter er genginn til liðs við Selfoss …
Þorlákur Breki Þ. Baxter er genginn til liðs við Selfoss á láni frá Stjörnunni. Ljósmynd/Selfoss

Knattspyrnumaðurinn Þorlákur Breki Þ. Baxter er genginn til liðs við Selfoss á láni frá Stjörnunni. 

Þorlákur Breki lék sinn síðasta leik fyrir Stjörnuna í bili í sigri á Augnabliki, 2:1, í 32-liða úrslitum bikarsins í gær. Skoraði hann þar fyrra mark Stjörnunnar á 26. mínútu. 

Breki, sem er 19 ára gamall, er uppalinn hjá Hetti en skipti yfir í Selfoss fyrir tímabilið 2021.

Skrifaði hann undir þriggja ára samning við Stjörnuna fyrir yfirstandandi tímabil og því framtíðarmaður í Garðabænum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka