Varaformaður Samfylkingarinnar vill annað sætið í Reykjavík Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. janúar 2022 17:54 Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sækist eftir öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í prófkjöri flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Heiða skipaði annað sætið á lista Samfylkingarinnar í síðustu sveitarstjórnarkosningum á eftir Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, sem hefur tilkynnt að hann muni gefa kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hún tilkynnir þessa ákvörðun sína í færslu á Facebook og segir þar að Reykjavík sé stórkostleg borg á fleygiferð inn í framtíðina og sé því mikilvægt að „við“ villumst ekki af leið, höldum áfram að nútímavæða og byggja upp mannvæna og góða borg fyrir alla. „Við erum stödd í mesta uppbyggingarskeiði í sögu borgarinnar þar sem verið er að fjölga alls konar íbúðum af því að fólk er allskonar. Við leggjum áherslu á hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk, félagslegt húsnæði og uppbyggingu leiguhúsnæðis sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða,“ skrifar Heiða í færslunni. Stefnan hafi verið sett á kolefnishlutlausa borg þar sem Borgarlínan verði megindrifkrafturinn, þar sem allir fái raunhæft val umvistvæna ferðamáta með aðgengilegum almenningssamgöngum, hjóla- og göngustígum. „Mannréttindi og velferðarmál þurfa að vera rauður þráður við stjórn borgarinnar, markmið okkar er að auka lífsgæði og lýðheilsu og stuðla að því að allir Reykvíkingar eigi kost á að lifa með reisn. Við þurfum líka að klára uppbyggingu leikskólanna til að geta boðið öllum 12 til 18 mánaða börnum leikskólapláss og halda áfram að styrkja alla þjónustu við börn og barnafjölskyldur,“ skrifar Heiða. Hún segir þetta verða meginverkefni „Velferðarborgarinnar Reykjavíkur“ á næsta kjörtímabili og því mikilvægt að hennar mati að það verði undir traustri stjórn jafnaðarfólks. „Ég brenn fyrir samfélagi jafnaðar og jafnréttis, sjálfbærar þróunar og réttlætis, þar sem við öll getum átt gott og heilsusamlegt líf. Velferðarborgin Reykjavík er lykillinn að því að þannig samfélag fái að þróast og dafna á Íslandi. Að því vill ég áfram vinna,“ skrifar Heiða. „Ég óska því eftir stuðningi til að starfa áfram í forystusveit borgarstjórnar og býð mig fram í 2. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík.“
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2022 Samfylkingin Tengdar fréttir Skúli vill þriðja sætið Skúli Þór Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir þriðja sætinu á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Skúli skipaði þriðja sætið á lista flokksins fyrir fjórum árum. 11. janúar 2022 08:26 Stefnir í litla endurnýjun í forystu flokkanna í borginni Það verður mikið um kunnugleg andlit í baráttunni um borgina þegar kosið verður til sveitarstjórna eftir 125 daga. Dagur B. Eggertsson tilkynnti í morgun að hann ætlaði að taka slaginn - og láta reyna á þriðja kjörtímabilið sem borgarstjóri. 10. janúar 2022 22:34 Dagur áfram í pólitíkinni Dagur B. Eggertsson hyggst halda áfram í pólitík og gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hann greindi frá þessu í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 rétt í þessu. 10. janúar 2022 08:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Erlent Fleiri fréttir Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Sjá meira
Skúli vill þriðja sætið Skúli Þór Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir þriðja sætinu á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Skúli skipaði þriðja sætið á lista flokksins fyrir fjórum árum. 11. janúar 2022 08:26
Stefnir í litla endurnýjun í forystu flokkanna í borginni Það verður mikið um kunnugleg andlit í baráttunni um borgina þegar kosið verður til sveitarstjórna eftir 125 daga. Dagur B. Eggertsson tilkynnti í morgun að hann ætlaði að taka slaginn - og láta reyna á þriðja kjörtímabilið sem borgarstjóri. 10. janúar 2022 22:34
Dagur áfram í pólitíkinni Dagur B. Eggertsson hyggst halda áfram í pólitík og gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hann greindi frá þessu í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 rétt í þessu. 10. janúar 2022 08:18