Nokkurra vikna slappleiki og 19 skipverjar með Covid-19 Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 20. október 2020 12:11 Fyrsta verk heilbrigðisstarfsfólks á Vestfjörðum verður að taka blóðprufu af öllum skipverjunum til að meta veikindi þeirra betur. Hraðfrystihúsið Gunnvör hf
Nú um hádegisleytið tekur heilbrigðisstarfsfólk á Vestfjörðum á móti áhöfn frystiskipsins Júlíusar Geirmundssonar Ís 270 á Ísafirði en langflestir um borð eru með Covid-19. Til greina kemur að opna tímabundið farsóttarhús á Vestfjörðum. Frystiskipið kom til hafnar á Ísafirði á sunnudag þar sem allir skipverjar fóru í sýnatöku. Að henni lokinni lagði skipið úr höfn áður en niðurstöðurnar lágu fyrir. Síðar kom í ljós að mikill meirihluti væri sýktur af Covid-19. Veiðum var þá hætt þegar í stað og skipinu snúið til hafnar. Nú um hádegisbil er von á áhöfninni sem telur 25 manns. Staðfest smit um borð eru 19 en fleiri hafa þó fundið fyrir einkennum. Sumir þeirra höfðu jafnvel verið veikir í nokkrar vikur um borð. Heilbrigðisstarfsfólk á Vestfjörðum á mikið verk fyrir höndum því taka þarf blóðprufu úr hverjum og einum til að meta hvort smitið sé virkt. Þeir sem ekki hafa virkt smit losna úr einangrun þá þegar. Niðurstöður munu þó ekki liggja fyrir fyrr en á morgun. Því þurfa skipverjarnir að dvelja um borð í skipinu eina nótt í viðbót. Á morgun þarf síðan að ákveða hvar skipverjarnir munu sæta áframhaldandi einangrun. Til skoðunar að opna farsóttarhús á Vestfjörðum Súsanna Björg Ástvaldsdóttir er umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum. „Meirihlutinn býr hérna fyrir vestan og ég á eftir að tala við hvern og einn hvernig aðstaðan er heima fyrir til að sjá hvort það sé yfir höfuð möguleiki að þeir sæti einangrun heima hjá sér, eða þurfi að fara í sóttvarnahúsið í Reykjavík eða hvort við setjum sóttvarnahús upp fyrir vestan. Þá gætu sumir valið kannski að vera áfram um borð í skipinu.“ Þegar fréttastofa náði tali af Súsönnu var hafði hún nýlokið fjarfundi með sóttvarnalækni en fjölmargir koma að aðgerðunum fyrir vestan. Súsanna var spurð út í líðan skipverjanna. „Ég mat þá á sunnudaginn og það var enginn með alvarleg veikindi þá og þeir hafa ekkert verið í bandi en ég bauð þeim upp á að hafa samband ef einhver veiktist alvarlega. En þeir verða hérna rétt fyrir utan þannig að ef einhver veikist þá bara náum við í hann.“
Ísafjarðarbær Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Sjávarútvegur Hópsmit á Júlíusi Geirmundssyni Tengdar fréttir Sneru aftur í land eftir að meirihluti áhafnar reyndist smitaður Meirihluti áhafnar frystiskipsins Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 hefur greinst með kórónuveirusmit 19. október 2020 21:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Sneru aftur í land eftir að meirihluti áhafnar reyndist smitaður Meirihluti áhafnar frystiskipsins Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 hefur greinst með kórónuveirusmit 19. október 2020 21:23