Xi tilkynnti óvænt um að Kína stefni að kolefnishlutleysi 2060 Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2020 10:57 Xi Jinping, forseti Kína, sendi allsherjarþinginu myndbandsávarp. Þar tilkynnti hann um metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Kínverja. AP/UNTV
Kínverjar ætla að stefna að því að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2060 til að draga úr hættunni á verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti þetta óvænt í ávarpi á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Kína er stærsti losandi gróðurhúsalofttegunda sem valda hnattrænni hlýnun í heimi. Gangi áform kommúnistastjórnarinnar í Beijing eftir nær losun Kína hámarki fyrir árið 2030. Kínverskt samfélag verði svo orðið kolefnishlutlaust fyrir árið 2060. Áður höfðu kínversk stjórnvöld talað um að losun toppaði í síðasta lagi 2030 en lítið vilja gefa uppi um lengri tíma skuldbindingar. Um 28% heildarlosunar mannkyns á gróðurhúsalofttegundum fer fram í Kína. Losunin þar jókst árið 2018 og 2019, ólíkt þróuninni í sumum vestrænum ríkjum. Á allsherjarþinginu hvatti Xi heimsbyggðina til þess að ná vopnum sínum eftir efnahagsáfall kórónuveirufaraldursins á vistvænan hátt, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Ekki kom þá fram í máli Xi hvernig Kína ætlaði sér að ná kolefnishlutleysi eða hvernig ríkisstjórn hans skilgreindi það. „Kína mun uppfæra ætluð landsmarkmið sín [gagnvart Parísarsamkomulaginu] með því að taka upp sterka stefnu og aðgerðir,“ sagði Xi. Ræða Xi kom beint í kjölfar ávarps Donalds Trump Bandaríkjaforseta þar sem hann skaut föstum skotum á Kína, meðal annars vegna „hömlulausrar mengunar“. Trump ætlar að draga Bandaríkin, annan stærsta losanda heims, úr Parísarsamkomulaginu og ríkisstjórn hans hefur afnumið og útvatnað fyrirhugaðar loftslags- og umhverfisaðgerðir. Li Shuo, sérfræðingur Grænfriðunga í loftslagsstefnu Kínverja, segir breska ríkisútvarpinu BBC að útspil Xi, beint í kjölfar ræðu Trump, hafi verið úthugsað. „Það sýnir stöðugan áhuga Xi á að notfæra sér loftslagsstefnu í alþjóðapólitískum tilgangi,“ segir hann. Samskipti Kína og Bandaríkjanna hafa farið versnandi í stjórnartíð Trump. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við því í gær að nýtt kalt stríð gæti verið yfirvofandi.
Kína Loftslagsmál Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Varaði við köldu stríði Kína og Bandaríkjanna Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við hættunni á að nýtt kalt stríð brytist út á milli Bandaríkjanna og Kína í ávarpi sínu á fyrsta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í fjarfundi. 22. september 2020 16:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Varaði við köldu stríði Kína og Bandaríkjanna Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við hættunni á að nýtt kalt stríð brytist út á milli Bandaríkjanna og Kína í ávarpi sínu á fyrsta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í fjarfundi. 22. september 2020 16:35