Líkti Ansu Fati við svartan götusölumann á flótta undan lögreglunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. október 2020 14:11 Ansu Fati fagnar marki sínu fyrir Barcelona gegn Ferencváros á þriðjudaginn. getty/Alex Caparros
Spænski blaðamaðurinn Salvatore Sostres hefur beðist afsökunar á að hafa líkt Ansu Fati, leikmanni Barcelona, við svartan götusölumann. Fati skoraði eitt mark og lagði upp annað í 5-1 sigri Barcelona á Ferencváros í Meistaradeild Evrópu í fyrradag. Í umfjöllun sinni um leikinn í dagblaðinu ABC reyndi Sostres að lýsa því hversu fljótur Fati er. „Þegar hann er á fullri ferð minnir hann á gasellu eða er eins og mjög ungur, svartur götusölumaður á flótta undan lögreglunni,“ skrifaði Sostres. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir þessa lýsingu, m.a. af Antoine Griezmann, samherja Fatis hjá Barcelona. „Ansu er frábær strákur sem á skilið virðingu eins og allar manneskjur. Segjum nei við rasisma og dónaskap,“ skrifaði Griezmann á Twitter. Í dag birtist afsökunarbeiðni frá Sostres á heimasíðu ABC. Það er þó erfitt að lesa mikla iðrun úr orðum hans. „Þegar ég reyndi að lýsa fegurðinni í hreyfingum Fati og hæfileikum hans sem leikmanns voru sum ummæli túlkuð sem kynþáttafordómar. Það var ekki ætlun mín eða skoðun því ég hef mikið álit á honum eins og hefur sést í mínum skrifum um hann. Ég harma þennan misskilning og bið alla þá sem móðguðust afsökunar,“ sagði Sostres. Hinn sautján ára Fati hefur byrjað tímabilið af gríðarlega miklum krafti, bæði með Barcelona og spænska landsliðinu. Hann var m.a. valinn leikmaður september-mánaðar í spænsku úrvalsdeildinni.
Spænski boltinn Mest lesið Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Mari meyr eftir sigurinn Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Þambar kakó og rjóma eftir magnað afrek: „Upp og niður eins og lífið“ Sport Þorleifur horfði á Íslandsmet sitt falla: „Kom á óvart“ Sport Í beinni: Breiðablik - Valur | Mikil pressa á gestunum Íslenski boltinn Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti Baunað á Brady: „Þín verður ávallt minnst sem tíkar Eli Manning“ Sport Í beinni: Crystal Palace - Manchester United | Fara í sjötta sætið með sigri Enski boltinn Fleiri fréttir Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Í beinni: Breiðablik - Valur | Mikil pressa á gestunum Í beinni: Crystal Palace - Manchester United | Fara í sjötta sætið með sigri Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Sjá meira