Lífið

„Það er ennþá ætlast til þess að við þegjum og högum okkur eins og dömur“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
21 árs gamla og hálf íslenska tónlistarkonan Leyla Blue þykir rísandi stjarna í tónlistarheiminum um þessar mundir. 
21 árs gamla og hálf íslenska tónlistarkonan Leyla Blue þykir rísandi stjarna í tónlistarheiminum um þessar mundir.  Mynd - Anna T. Pálmadóttir

„Ég er orðin þreytt á þessu kerfi. Kerfi sem hvorki verndar né styður við konur,“ segir tónlistarkonan Leyla Blue í samtali við Vísi.

Leyla er 21 árs gömul, hálf íslensk og hálf ísraelsk. Mamma Leylu er ljósmyndarinn Anna Pálma og pabbi hennar er Guy Aroch, sem er einnig ljósmyndari. Fjölskyldan hefur verið búsett í New York þar sem Leyla ólst upp og stundaði tónlistarnám í NYU, Clive Davis School of Recorded Music.

Leyla Blue sendi frá sér áhrifaríkt myndband við nýjasta lagið sitt Fuck Yourself. Skjáskot

Eftir námið fékk Leyla strax samning við plötuútgáfuna Island Records og hefur hún síðan gefið út fjögur lög. Vinsælasta lagið af þeim er lagið Silence sem er nú með um tvær milljónir í hlustun á streymisveitunni Spotify.

Leyla skrifar og semur öll lögin sín sjálf en hún er um þessar mundir búsett í Los Angeles þar sem hún semur meira í samvinnu við tónlistarframleiðendur.

Leyla ólst upp í New York en er nú búsett í LA þar sem hún vinnur í tónlistarferli sínum. Mynd - Anna T. Pálmadóttir

Lagið Fuck Yourself er fimmta lag Leylu og kom það út á streymisveitum í síðustu viku. Lagið og myndbandið við lagið þykja afar valdeflandi fyrir konur og segir Leyla lagið sannarlega vera ákveðna ádeilu.

Ég er orðin svo þreytt á þessu kerfi. Kerfi sem hvorki verndar né styður við konur. Þess vegna samdi ég lagið Fuck Yourself. MeToo hreyfingin gaf mér kraftinn til þess að láta í mér heyra eins og á við svo margar aðrar konur sem deila svipaðri reynslu.

„Reynslu, allt frá „slut shaming“ til kynferðislegrar áreitni eða vanvirðingar á vinnustað. Það er ennþá ætlast til þess að við þegjum og högum okkur eins og „dömur“. Mig langaði að gera lag sem væri þvert á allt þetta bull sem er í gangi.“ 

Hér fyrir neðan má sjá myndband við lagið Fuck Yourself

Móðir Leylu Blue, Anna Pálma leikstýrði myndbandinu en ásamt því að vera ljósmyndari starfar hún sem leikstjóri. Myndbandið segja þær mæðgur vera undir áhrifum fyrrum forseta Bandaríkjanna, JFK, frá sjöunda áratugnum.

Textinn í laginu þykir afar áhrifamikill og greinilegt að þessi unga hæfileikaríka söngkona og lagahöfundur á framtíðina fyrir sér. 

(Textabrot)

You'll say my dress was too short

And if I bring him to court

You'll let him off with a slap on the wrist

Until he does it again

And you'll have to pretend

You didn't know that he was dangerous

Well you can go and fuck yourself

I got nothin to say to you

But fuck yourself

You don't know what I'm going throu
gh

Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með Leylu Blue á samfélagsmiðlunum Instagram og Soundcloud


Tengdar fréttir

Ariana Grande í Hvíta húsinu

Ariana Grande frumsýndi í gær tónlistarmyndband við nýjasta lag sitt, Positions. Myndbandið var frumsýnt stuttu eftir að kappræðum Donald Trumps og Joe Biden forsetaframbjóðenda lauk.

Kristín Sesselja gefur út nýja plötu um ástarsorg

Söngkonan Kristín Sesselja sendi í dag frá sér plötuna Breakup Blues og er hún sjálf höfundur allra laga og texta. Hinn efnilegi Baldvin Hlynsson útsetti öll lögin á plötunni nema tvö sem þau útsettu saman

Beta og Barði gefa út lag saman í fyrsta skipti

Listamennirnir Elísabet Eyþórsdóttir og Barði Jóhannsson gáfu út lag saman á miðnætti undir nafninu Redwood Moon en þau hafa unnið að verkefninu síðan í vor. Það var Ellen Kristjáns móðir Elísabetar sem kynnti parið fyrir ári síðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×