Bjørnsen skúrkurinn hjá Norðmönnum sem féllu úr leik Smári Jökull Jónsson skrifar 25. janúar 2023 19:16 Sander Sagosen reynir að brjótast í gegnum vörn Spánverja. Vísir/EPA Spánverjar eru komnir í undanúrslit heimsmeistaramótsins í handknattleik eftir sigur á Noregi í tvíframlengdum leik. Lokatölur 35-34 þar sem Norðmenn fóru illa að ráði sínu í lok venjulegs leiktíma.
Það var gríðarleg spenna í leik Noregs og Spánar sem mættust í Gdansk í dag. Jafnt var á með liðunum allan tímann en Norðmenn leiddu 13-12 af loknum fyrri hálfleiknum. Í síðari hálfleik var jafnt á nær öllum tölum. Liðin skiptust einstaka sinnum á forystunni þó Norðmenn hafi yfirleitt verið skrefinu á undan og náðu þeir í tvígang tveggja marka forskoti. Kristian Sæveras kom tvisvar inn af bekknum hjá Noregi og varði vítaskot Spánverja sem gáfust þó ekki upp. Kristian Bjørnsen fer inn úr horninu í leik Noregs og Spánar í dag.Vísir/EPA Þegar innan við mínúta var staðan 25-24 fyrir Norðmenn og Spánverjar í sókn. Alex Dujshebaev fór þá í frekar ótímabært gegnumbrot og náði skoti sem Torbjorn Bergerud í marki Norðmanna varði. Jonas Wille, þjálfari Noregs tók leikhlé og lagði línurnar fyrir sína menn. Allt virðist síðan vera að ganga upp hjá Norðmönnum í sókninni í kjölfarið. Kristian Bjørnsen fékk boltann í þegar um fimm sekúndur voru eftir en í stað þess að fara í gegn og skjóta, ákvað hann að gefa til baka og fékk dæmda á sig leiktöf. Spánverjar voru fljótir að átta sig, komu boltanum á Daniel Dujshebaev sem beið fremstur og jafnaði metin rétt áður en flautan gall. Staðan 25-25 og því þurfti að framlengja. Spennan hélt síðan áfram í framlengingunni. Að loknum fyrri hluta hennar var staðan 27-27. Danir fengu tækifæri til að komast í 29-28 þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en Gonzalo Perez De Vargas varði. Daniel Dujshebaev kom í kjölfarið Spánverjum einu marki yfir og Perez De Vargas varði aftur frá Norðmönnum í næstu sókn. Eftir þunglamalega sókn Spánverja tókst Norðmönnum hins vegar að vinna boltann þegar fimmtán sekúndur voru eftir. Þeir brunuðu í sókn og Kristian Bjørnsen jafnaði í 29-29. Spánverjar fengu tækifæri til að skora og Daniel Dujshebaev komst í ágætt skotfæri þegar Christian O´Sullivan braut á honum. Dómararnir ráku O´Sullivan útaf en dæmdu aðeins aukakast, Spánverjum til mikillar gremju. Aukakastið fór í varnarvegginn og því varð að framlengja á ný. Það vantaði ekki hörkuna í leikinn í dag.Vísir/EPA Í annarri framlengingu hélt sama dramatíkin áfram. Spánn komst í 35-34 þegar skammt var eftir og Norðmenn fengu lokasóknina. Áðurnefndur Bjørnsen fékk fínt færi í hægra horninu en Gonzalo Perez De Vargas, sem var frábær í leiknum, varði og tryggði Spánverjum sigurinn en Norðmenn sitja eftir með sárt ennið. Þetta var fyrsta skotið sem Bjørnsen misnotaði í leiknum. Títtnefndir Bjørnsen var markahæstur hjá Noregi með níu mörk en verður eflaust lengi að sofna í kvöld enda klikaði hann í tvígang á ögurstundu. Sander Sagosen skoraði aðeins þrjú mörk og munaði um það hjá norska liðinu. Angel Perez og Alex Dujshebaev voru markahæstir hjá Spáni með sjö mörk.
HM 2023 í handbolta Noregur Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Sjá meira