Forstjóri Hvals býst við fyrsta hvalnum á land fyrir helgi Kristján Már Unnarsson skrifar 22. júní 2022 22:22 Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., við brottför hvalbátanna úr Reykjavíkurhöfn í dag. Egill Aðalsteinsson Hvalbátarnir héldu til veiða í dag og vonast Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., til að fyrsti hvalurinn verði kominn á land fyrir helgi. Hann efast þó um að það takist að veiða alla kvótann en segir ekkert vesen að selja hvalkjötið.
Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá fjölskyldur hvalveiðimanna og gamla starfsmenn Hvals í hópi þeirra sem fylgdust með brottför hvalbátanna, og auðvitað forstjórann, Kristján Loftsson, sem svaraði þeirri spurningu játandi að þetta væri stór dagur. Gamlir starfsmenn Hvals hf. og fjölskyldur skipverja mættu á Ægisgarð til að verða vitni að upphafi hvalvertíðar.Egill Aðalsteinsson Hann sagði ýmsar ástæður fyrir því að ekki hefði tekist að veiða hval frá því haustið 2018 sem hefðu haldið skipunum í landi. „En þetta er nú orðið vonandi betra ástand núna,“ sagði Kristján. Byrjað var á því að losa landfestar Hvals 9 sem lá utan á Hval 8. Upphafið var þó heldur neyðarlegt fyrir Faxaflóahafnir en dráttarbáturinn Leynir réð ekki við að draga hvalbátinn frá í vestangjólu, sem kom þvert á skipið. Fór svo að Hval 9 rak hratt til baka. Um borð í Hval 8 voru menn snöggir til og náðu að koma dekki á rekkverkið rétt áður en árekstur varð en Hvalur 9 rakst þó einnig utan í skuttogarann Sigurborgu. Hvalur 9 við það að rekast á Hval 8. Hjólbarða var snarað yfir rekkverkið þegar menn sáu stefna í árekstur.Egill Aðalsteinsson Öflugri dráttarbátur var fenginn á vettvang, Haki, og náði hann að koma báðum hvalbátunum hnökralaust frá svo þeir gætu siglt út áleiðis á miðin. Langreyðarkvóti ársins dugar vel, að mati forstjóra Hvals. „Tæpir tvöhundruð hvalir. Við veiðum það aldrei, sko. En þetta fer bara eftir veðri. Ef það er mikið af brælum, þá veiðum við minna. Ef það er gott veður, þá er meiri veiði. Þetta er tiltölulega einfalt, sko,“ segir Kristján, sem gerir ráð fyrir að vertíðin standi fram í síðari hluta septembermánaðar. En hvað er að segja af markaði fyrir hvalkjötið? „Það er ekkert vesen með það.“ -Engar birgðir? „Ég veit ekki af hverju þið haldið það. Þið eruð alltaf að messa um það, þessir fréttamenn,“ svarar Kristján Loftsson. Hvalur 9 siglir úr Reykjavíkurhöfn í dag.Egill Aðalsteinsson Búist er við að hvalbátarnir stefni á hvalaslóð djúpt suðvestur af Garðskaga, um það bil 150 sjómílur frá landi, og þeir gætu verið búnir að skjóta fyrstu hvalina í fyrramálið. En hvenær býst forstjóri Hvals við fyrsta hvalnum í Hvalfjörð? „Ég veit það ekki. Spáin er nú ekkert allt of góð. En það er aldrei að vita, sko.“ -Gæti það orðið fyrir helgi? „Já, já. Það verður fyrir helgi.“ Og Hvalur 8 kvaddi Reykjavíkurhöfn með alvöru gufuskipsflauti um strompinn, sem heyra má hér í frétt Stöðvar 2:
Hvalveiðar Sjávarútvegur Reykjavík Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Hvalbátarnir rákust saman þegar dráttarbátur reyndist of kraftlítill Neyðarleg uppákoma varð í Reykjavíkurhöfn í dag þegar hvalbátar Hvals hf. voru að leggja frá bryggju til hvalveiða. Dráttarbátur Faxaflóahafna réð ekki við það verkefni að draga fyrri hvalbátinn, Hval 9, frá hinum bátnum, Hval 8, og missti hann frá sér. Það varð til þess að Hvalur 9 rakst bæði utan í Hval 8 sem og skuttogarann Sigurborgu SH. 22. júní 2022 17:56 Umsjónarmaður hvalbáta segir starfsmenn Hvals ekkert eldast Tilhlökkun er í starfsmönnum Hvals hf. að hefja hvalveiðar á ný eftir fjögurra ára hlé. Í dag var hvalbátnum Hval 9 rennt úr slipp eftir klössun og Hvalur 8 dreginn upp í staðinn. 26. apríl 2022 22:02 Hvalveiðikvótinn heimilar veiðar á 193 langreyðum Fátt virðist geta komið í veg fyrir að stórhvalaveiðar hefjist að nýju við Ísland í sumar eftir fjögurra ára hlé. Heimilt er að veiða hátt í tvöhundruð langreyðar í ár og Hvalur hf. er auk þess með fullgilt vinnsluleyfi í hvalstöðinni í Hvalfirði. 23. mars 2022 20:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsti flaggið“ Innlent Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ Innlent Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Erlent Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Innlent Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Innlent Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Innlent Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Innlent Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Erlent Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Erlent Vantrauststillagan felld Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsti flaggið“ Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ Steingrímur J og Njáll Trausti sameinast í orkuvæðingu norðausturhornsins Flóttamenn tóku forskot á stóra plokkdaginn Frumskógur bílastæðagjalda og þau hæstu þúsund krónur Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu „Engin ástæða til að boða til kosninga“ Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna Stungumaður þarf að dúsa inni fram að dómi Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld Vantrauststillagan felld Skólabrú með garði á þakinu „djörf og fersk“ tillaga Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Húsfélag ekki skaðabótaábyrgt vegna myglu í séreign Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Öryrkjar gagnrýna frestun á lagabreytingu og FÍB vill grisja bílastæðafrumskóginn Fleiri gifta sig hjá sýslumanni en í kirkju Sjá meira
Hvalbátarnir rákust saman þegar dráttarbátur reyndist of kraftlítill Neyðarleg uppákoma varð í Reykjavíkurhöfn í dag þegar hvalbátar Hvals hf. voru að leggja frá bryggju til hvalveiða. Dráttarbátur Faxaflóahafna réð ekki við það verkefni að draga fyrri hvalbátinn, Hval 9, frá hinum bátnum, Hval 8, og missti hann frá sér. Það varð til þess að Hvalur 9 rakst bæði utan í Hval 8 sem og skuttogarann Sigurborgu SH. 22. júní 2022 17:56
Umsjónarmaður hvalbáta segir starfsmenn Hvals ekkert eldast Tilhlökkun er í starfsmönnum Hvals hf. að hefja hvalveiðar á ný eftir fjögurra ára hlé. Í dag var hvalbátnum Hval 9 rennt úr slipp eftir klössun og Hvalur 8 dreginn upp í staðinn. 26. apríl 2022 22:02
Hvalveiðikvótinn heimilar veiðar á 193 langreyðum Fátt virðist geta komið í veg fyrir að stórhvalaveiðar hefjist að nýju við Ísland í sumar eftir fjögurra ára hlé. Heimilt er að veiða hátt í tvöhundruð langreyðar í ár og Hvalur hf. er auk þess með fullgilt vinnsluleyfi í hvalstöðinni í Hvalfirði. 23. mars 2022 20:51