Þykir leitt að verða vitni að óróanum í samfélaginu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. október 2020 11:28 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að sér þyki leitt að verða vitni að þeim óróa sem skapast hefur í samfélaginu eftir að hann skilaði minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir vegna kórónuveirunnar og svo útgáfu nýrra reglugerða ráðherra í kjölfarið. Þórólfur segist telja að bæði hann og ráðuneytið þurfi að draga lærdóm af þessum óróa og verða samhentari og skýrari í framsetningu sinni í framtíðinni. Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Vísaði hann til reglugerða sem tóku gildi á þriðjudag. Mikið hefur verið rætt um misræmi í minnisblaði sóttvarnalæknis og svo atriði í annarri reglugerðinni sem snýr að því hvort líkamsræktarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu megi hafa opið eða ekki. Lagði Þórólfur til að stöðvarnar yrðu áfram lokaðar. Ráðherra fór gegn þeirri tillögu og heimilaði hópatíma í stöðvunum að uppfylltu tuttugu manna samkomubanni og að ítrustu sóttvarna yrði gætt. Þá hefur verið gagnrýnt að fullorðnir megi mæta í ræktina á sama tíma og íþróttastarf barna á höfuðborgarsvæðinu liggi alveg niðri. Mörg atriði óskýr og í einstaka tilfellum misvísandi Þórólfur ræddi minnisblaðið og reglugerðirnar á upplýsingafundinum í dag. „Mér þykir leitt að verða vitni að þeim óróa sem hefur komið upp í kjölfarið á útgáfu minnisblaðsins og reglugerðanna en ein af ástæðum þess er vafalaust sú að reglugerðirnar og minnisblaðið er í mörgum atriðum óskýrar og í einstaka tilfellum misvísandi. En ég vona hins vegar að þrátt fyrir þessa hnökra þá sjái allir meginmarkmið aðgerðanna sem er að forðast hópamyndun, forðast of mikla nánd, sérstaklega óskyldra og ótengdra aðila, og forðast smithættu af sameiginlegum snertiflötum. Þetta eru meginatriði aðgerðanna og hafa verið allan tímann í raun og veru,“ sagði Þórólfur. Ef allir hefðu þetta í huga væri nokkuð ljóst hvað þyrfti að gera til að hindra útbreiðslu veirunnar og tryggja þann árangur sem sóst er eftir. Ekki óeðlilegt að ráðuneytið fari ekki í einu og öllu eftir tillögum sóttvarnalæknis „Ég held hins vegar að við getum sagt að bæði ég og ráðuneytið þurfum að draga okkar lærdóm af þessum óróa og vera samhentari og skýrari í framsetningu í framtíðinni. Ég vil líka endurtaka það sem ég hef sagt margoft að mér finnst ekkert óeðlilegt við það að ráðuneytið fari ekki í einu og öllu eftir því sem ég legg til. Stjórnvöld þurfa að taka tillit til fjölmargra annarra þátta en sóttvarna og bera að endingu ábyrgð á þeim ráðstöfunum sem gripið er til,“ sagði Þórólfur. Jafnframt sagðist hann ekki efst um það að ef vikið væri frá tillögum hans þá fylgdu því viðhlítandi skýringar. Þá áréttaði hann að þrátt fyrir að fjölda smitaðra hafi farið fækkandi síðustu daga þá væri baráttunni ekki lokið. „Og ég vil hvetja alla til dáða á næstu mánuðum,“ sagði sóttvarnalæknir. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Fleiri fréttir Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Sjá meira