Stúkan um annað mark ÍBV: „Afdrifarík mistök“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júní 2022 13:00 Leikmenn ÍBV fagna öðru marki sínu þar sem um greinilega rangstöðu var að ræða. Vísir/Diego Stúkan rýndi í annað mark ÍBV er liðið gerði 3-3 jafntefli við Fram í Úlfarsárdal í Grafarholti. Nýtt myndefni sýnir að „Andri Rúnar Bjarnason er klárlega fyrir innan“ í aðdraganda marksins en atburðarrásin fyrir markið var vægast sagt undarleg. Fram og ÍBV gerðu jafntefli í einkar fjörum leik á mánudagskvöld. Annað mark gestanna frá Vestmannaeyjum fór í taugarnar á heimamönnum og réttilega. Í Stúkunni á mánudag var ekki hægt að sjá nákvæmlega hvað það var sem fór í taugarnar á heimamönnum en þökk sé nýju myndefni var hægt að skoða það í þætti gærdagsins. Atvikið og umræðuna má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. „Hér sjáum við markið sem Andri Rúnar skorar. Hér er Þórir (Guðjónsson) að sparka boltanum fram, hann er meiddur og sest niður,“ segir Guðmundur Benediktsson, þáttastjórnandi. Í kjölfarið sést að aðstoðardómarinn biður Þóri um að koma af velli, sem hann og gerir. Þetta gerir það að verkum að aðstoðardómarinn er ekki í línu og sér því ekki þegar Andri Rúnar fær sendingu í gegnum vörn Fram sem hann afgreiddi snyrtilega milli fóta Ólafs Íshólm í marki Fram. Þórir Guðjónsson meiddist í aðdraganda marksins.Vísir/Diego „En Andri Rúnar er klárlega fyrir innan þarna. Í raun eina sem er hægt að segja er að þetta eru mistök hjá aðstoðardómaranum,“ bætti Guðmundur við. „Það er þannig. Ég svo sem kann þessa reglu svo illa en við erum búin að fá góðar útskýringar á því að þetta eru bara mistök. Hann er ekki í línu, sér ekki línuna og treystir sér því ekki til að flagga rangstöðu – eftir að hafa gefið Þóri leyfi til að fara af velli,“ sagði Reynir Leósson um atvikið. „Þórir hefði ekki getað farið sjálfur af velli því að þá hefði hann getað verið að nýta sér það að reyna gera Andra Rúnar rangstæðan með því að stíga út fyrir og vera ekki hluti af leiknum. En hann fékk leyfi en það var bara orðið of seint,“ bætti Guðmundur við. „Ég helt þetta væri þannig og þess vegna hefði aðstoðardómarinn ekki flaggað því Þórir ætlaði að fara af velli til að gera Andra Rúnar rangstæðan. Þetta voru bara mistök, auðvitað gera allir mistök en þessi voru afdrifarík,“ sagði Reynir. Margrét Lára Viðarsdóttir endaði þó á að hrósa dómaranum fyrir að giska ekki út í bláinn. „Ótrúlega skondið atvik einhvern veginn. Mér finnst vel gert hjá aðstoðardómaranum að ef hann sér ekki atvikið þá getur hann ekki dæmt það. Hann er eflaust að meta þetta þannig að hann hafi ekki séð það.“ Klippa: Stúkan: Nýtt myndefni af öðru marki ÍBV gegn Fram Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Fótbolti Íslenski boltinn Stúkan Fram ÍBV Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Íslenski boltinn Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti Fleiri fréttir „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Ólafur frá næstu vikurnar Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjá meira
Fram og ÍBV gerðu jafntefli í einkar fjörum leik á mánudagskvöld. Annað mark gestanna frá Vestmannaeyjum fór í taugarnar á heimamönnum og réttilega. Í Stúkunni á mánudag var ekki hægt að sjá nákvæmlega hvað það var sem fór í taugarnar á heimamönnum en þökk sé nýju myndefni var hægt að skoða það í þætti gærdagsins. Atvikið og umræðuna má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. „Hér sjáum við markið sem Andri Rúnar skorar. Hér er Þórir (Guðjónsson) að sparka boltanum fram, hann er meiddur og sest niður,“ segir Guðmundur Benediktsson, þáttastjórnandi. Í kjölfarið sést að aðstoðardómarinn biður Þóri um að koma af velli, sem hann og gerir. Þetta gerir það að verkum að aðstoðardómarinn er ekki í línu og sér því ekki þegar Andri Rúnar fær sendingu í gegnum vörn Fram sem hann afgreiddi snyrtilega milli fóta Ólafs Íshólm í marki Fram. Þórir Guðjónsson meiddist í aðdraganda marksins.Vísir/Diego „En Andri Rúnar er klárlega fyrir innan þarna. Í raun eina sem er hægt að segja er að þetta eru mistök hjá aðstoðardómaranum,“ bætti Guðmundur við. „Það er þannig. Ég svo sem kann þessa reglu svo illa en við erum búin að fá góðar útskýringar á því að þetta eru bara mistök. Hann er ekki í línu, sér ekki línuna og treystir sér því ekki til að flagga rangstöðu – eftir að hafa gefið Þóri leyfi til að fara af velli,“ sagði Reynir Leósson um atvikið. „Þórir hefði ekki getað farið sjálfur af velli því að þá hefði hann getað verið að nýta sér það að reyna gera Andra Rúnar rangstæðan með því að stíga út fyrir og vera ekki hluti af leiknum. En hann fékk leyfi en það var bara orðið of seint,“ bætti Guðmundur við. „Ég helt þetta væri þannig og þess vegna hefði aðstoðardómarinn ekki flaggað því Þórir ætlaði að fara af velli til að gera Andra Rúnar rangstæðan. Þetta voru bara mistök, auðvitað gera allir mistök en þessi voru afdrifarík,“ sagði Reynir. Margrét Lára Viðarsdóttir endaði þó á að hrósa dómaranum fyrir að giska ekki út í bláinn. „Ótrúlega skondið atvik einhvern veginn. Mér finnst vel gert hjá aðstoðardómaranum að ef hann sér ekki atvikið þá getur hann ekki dæmt það. Hann er eflaust að meta þetta þannig að hann hafi ekki séð það.“ Klippa: Stúkan: Nýtt myndefni af öðru marki ÍBV gegn Fram Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Stúkan Fram ÍBV Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Íslenski boltinn Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti Fleiri fréttir „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Ólafur frá næstu vikurnar Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti
Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti