Telja ófært að spítalinn tapi rödd læknaráðs Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. október 2020 23:25 Læknaráð var skipað bráðabirgðastjórn á fundi þess í gær. Vísir/Vilhelm
Læknar endurvöktu læknaráð Landspítalans úr dvala í gærmorgun þegar fundur var haldinn á vegum ráðsins í fyrsta skipti frá því að ný lög um heilbrigðisþjónustu voru samþykkt í sumar. Í lögunum höfðu ákvæði um lækna- og hjúkrunarráð verið felld út og þess í stað kveðið á um sameiginlegt fagráð allra heilbrigðisstétta á heilbrigðisstofnunum. Á fundinum var samþykkt bráðabirgðastjórn sem skipuð er fráfarandi stjórn læknaráðs og mun hún skilgreina framtíðarhlutverk ráðsins þar til ný stjórn verður skipuð. Þorbjörn Jónsson, sérfræðilæknir hjá Blóðbankanum og stjórnarmeðlimur, segir í tilkynningu á vef Læknafélags Íslands ráðið gegna mikilvægu hlutverki. „Okkar rödd hefur heyrst í gegnum tíðina og full ástæða til að læknaráð haldi í einhverri mynd áfram starfi sínu þó að löggjafinn hafi viljað leysa þennan selskap upp. Það er nokkuð ljóst að nýtt fagráð sem er skipað einum fulltrúa úr mörgum stéttum og skipað af forstjóra verður líklega aldrei með sjálfstæða rödd heldur ein samhljóma rödd inn í stjórnkerfi spítalans,“ segir Þorbjörn. Í bráðabirgðastjórn eru Berglind Bergmann Sverrisdóttir sérnámslæknir í lyflækningum, Guðrún Dóra Bjarnadóttir sérfræðilæknir í geðþjónustu, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir sérfræðilæknir á meðferðarsviði, Rafn Hilmarsson sérfræðilæknir í þvagfæraskurðlækningum og Þorbjörn Jónsson sérfræðilæknir hjá Blóðbankanum. Reynir Arngrímsson formaður Læknafélagsins sagði á fundinum að ófært væri að spítalinn tapaði rödd læknaráðs.
Heilbrigðismál Landspítalinn Tengdar fréttir Læknar segja hættuástand vera orðið daglegur veruleiki á Landspítala Í ályktun frá Félagi sjúkrahúslækna og Félagi almennra lækna er lýst yfir þungum áhyggjum af "viðvarandi óviðunandi og stöðugt versnandi ástandi á Landspítala.“ 9. janúar 2020 18:38 Stjórn læknaráðs ályktar um ástandið á bráðamóttöku Stjórnin segir meðhöndlun sjúklings í sjúkrabílum vegna plássleysis á bráðamóttöku vera dæmi um óásættanlega stöðu. 8. janúar 2020 14:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Sjá meira
Læknar segja hættuástand vera orðið daglegur veruleiki á Landspítala Í ályktun frá Félagi sjúkrahúslækna og Félagi almennra lækna er lýst yfir þungum áhyggjum af "viðvarandi óviðunandi og stöðugt versnandi ástandi á Landspítala.“ 9. janúar 2020 18:38
Stjórn læknaráðs ályktar um ástandið á bráðamóttöku Stjórnin segir meðhöndlun sjúklings í sjúkrabílum vegna plássleysis á bráðamóttöku vera dæmi um óásættanlega stöðu. 8. janúar 2020 14:21