Með þessu áframhaldi sjáum við fram á að geta ekki klárað tímabilið okkar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. apríl 2021 17:06 Björgvin Páll í leik með Haukum á yfirstandandi leiktíð, sem verður jafn framt hans síðasta á Ásvöllum. Hann mun ganga til liðs við Val í sumar. vísir/vilhelm Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, tjáði sig um kórónufaraldurinn og stöðu íþróttafólks hér á landi á Facebook-síðu sinni í dag. Pistilinn í heild sinni má finna neðst í fréttinni. „Nú þegar engin er á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og við erum búinn að bólusetja okkar viðkvæmustu hópa þá erum við íþróttafólkið enn á þeim stað að geta ekki stundað okkar íþrótt,“ segir Björgvin Páll til að byrja með. Hann hefur ekkert á móti því að gripið sé inn í og styður harðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar en hann vill hins vegar sjá boðum og bönnum aflétt þegar það á við. „Ég er mjög hlynntur hörðu inngripi þegar veiran blossar upp en þá verða afléttingar einnig að vera í takt við innanlandssmit utan sóttkvíar. Ef að ég tek mitt starf sem handboltamarkmaður sem dæmi þá má ég ekki láta kasta í mig bolta af 6 til 10 metra fjarlægð og eins mega leikmenn ekki senda bolta á milli sín.“ Sjá ekki fram á að geta klárað tímabilið „Við fengum þær upplýsingar í síðustu bylgju að litlar sem engar líkur væri á því að smitast í gegnum snertingu á bolta og veit ég ekki hvað hefur breyst síðan þá. Með þessu áframhaldi sjáum við íþróttafólkið fram á að geta ekki klárað tímabilið okkar.“ „Svona staða gerir það að verkum að við getum ekki undirbúið okkur til þess að geta farið af stað þegar verður búið að aflétta. Þetta snýst ekki bara um boltaleik, þetta snýst um að halda íþróttum landsins lifandi. Styðja við afreksfólkið okkar sem að eru einnig fyrirmyndir barnanna okkar og fólkið sem að gleður okkur heima í stofu í gegnum sjónvarpið.“ „Ég er ekki að fara fram á að við getum byrjað að spila fyrir fullu húsi af fólki á morgun heldur einungis að það sé einhver taktur í því þegar kemur að afléttingum.“ „Með þessum hörðu aðgerðum og engum afléttingum og engum undanþágum eru þau að auka líkurnar á því að fólk fylgi ekki fyrirmælum og hefur Þórólfur til að mynda oft talað um það.“ Til í sóttvarnarhótel ef það þýðir meira frelsi „Þegar kemur að þessu blessaða sóttkvíarhóteli þá skal ég glaður henda mér í 5 daga sóttkvíarhótel með mín 4 börn ef að það gerir það að verkum að flestir í landinu geti mætt til vinnu, að börn geti mætt í skóla og að íþróttir landsins fái að blómstra.“ „Öll þau 97 innanlandssmit sem greinst hafa undanfarnar vikur tengjast smitleka á landamærum. Ég hef hingað til staðið þétt við bakið á þríeykinu og ráðherrum og mun gera það áfram. Í blíðu og stríðu... en þó er enginn hafinn yfir gagngrýni.“ „Höldum áfram að berjast! Áfram Ísland!“ Varúð covid-status! Hef lítið tjáð mig um þessi mál öll en eftir upplýsingafund dagsins langar mig svakalega að pikka...Posted by Björgvin Páll Gústavsson on Thursday, April 8, 2021 Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Handbolti Íslenski handboltinn Mest lesið Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Góður leikur Tryggva skilaði engu Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Sigrar hjá Íslendingaliðunum Handbolti Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Fótbolti Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Enski boltinn Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Fótbolti Fleiri fréttir Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ Sjá meira
„Nú þegar engin er á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og við erum búinn að bólusetja okkar viðkvæmustu hópa þá erum við íþróttafólkið enn á þeim stað að geta ekki stundað okkar íþrótt,“ segir Björgvin Páll til að byrja með. Hann hefur ekkert á móti því að gripið sé inn í og styður harðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar en hann vill hins vegar sjá boðum og bönnum aflétt þegar það á við. „Ég er mjög hlynntur hörðu inngripi þegar veiran blossar upp en þá verða afléttingar einnig að vera í takt við innanlandssmit utan sóttkvíar. Ef að ég tek mitt starf sem handboltamarkmaður sem dæmi þá má ég ekki láta kasta í mig bolta af 6 til 10 metra fjarlægð og eins mega leikmenn ekki senda bolta á milli sín.“ Sjá ekki fram á að geta klárað tímabilið „Við fengum þær upplýsingar í síðustu bylgju að litlar sem engar líkur væri á því að smitast í gegnum snertingu á bolta og veit ég ekki hvað hefur breyst síðan þá. Með þessu áframhaldi sjáum við íþróttafólkið fram á að geta ekki klárað tímabilið okkar.“ „Svona staða gerir það að verkum að við getum ekki undirbúið okkur til þess að geta farið af stað þegar verður búið að aflétta. Þetta snýst ekki bara um boltaleik, þetta snýst um að halda íþróttum landsins lifandi. Styðja við afreksfólkið okkar sem að eru einnig fyrirmyndir barnanna okkar og fólkið sem að gleður okkur heima í stofu í gegnum sjónvarpið.“ „Ég er ekki að fara fram á að við getum byrjað að spila fyrir fullu húsi af fólki á morgun heldur einungis að það sé einhver taktur í því þegar kemur að afléttingum.“ „Með þessum hörðu aðgerðum og engum afléttingum og engum undanþágum eru þau að auka líkurnar á því að fólk fylgi ekki fyrirmælum og hefur Þórólfur til að mynda oft talað um það.“ Til í sóttvarnarhótel ef það þýðir meira frelsi „Þegar kemur að þessu blessaða sóttkvíarhóteli þá skal ég glaður henda mér í 5 daga sóttkvíarhótel með mín 4 börn ef að það gerir það að verkum að flestir í landinu geti mætt til vinnu, að börn geti mætt í skóla og að íþróttir landsins fái að blómstra.“ „Öll þau 97 innanlandssmit sem greinst hafa undanfarnar vikur tengjast smitleka á landamærum. Ég hef hingað til staðið þétt við bakið á þríeykinu og ráðherrum og mun gera það áfram. Í blíðu og stríðu... en þó er enginn hafinn yfir gagngrýni.“ „Höldum áfram að berjast! Áfram Ísland!“ Varúð covid-status! Hef lítið tjáð mig um þessi mál öll en eftir upplýsingafund dagsins langar mig svakalega að pikka...Posted by Björgvin Páll Gústavsson on Thursday, April 8, 2021 Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Handbolti Íslenski handboltinn Mest lesið Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Góður leikur Tryggva skilaði engu Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Sigrar hjá Íslendingaliðunum Handbolti Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Fótbolti Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Enski boltinn Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Fótbolti Fleiri fréttir Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ Sjá meira