Seldi Bubba húsið með því skilyrði að fá frímiða á alla tónleika Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 18. júní 2021 15:30 Feðgarnir Rúnar Gunnarsson (t.v.) og Gunnar Gunnarsson (t.h.) með Bubba fyrir framan húsið sem hann keypti af honum Gunnari. Gunnar Gunnarsson Gunnar Kr. Gunnarsson, 83 ára Seltirningur, seldi ástsæla tónlistarmanninum Bubba húsið sitt á dögunum. Eitt af þeim skilyrðum sem Gunnar setti við söluna var að hann fengi miða á alla tónleika Bubba það sem eftir er ævinnar. „
Þetta leiddi hvað af öðru við eldhúsborðið að ég yrði fastagestur á tónleikum hjá honum framvegis. Það var bara samþykkt strax. Og sonurinn, yngsti, hann Rúnar fer í sama pakka,“ segir Gunnar í samtali við fréttastofu. Auk þess að fá miða á alla tónleika Bubba fær hann óskalag á tónleikunum, eða öllu heldur aukalag, sem Bubbi lætur ekki eftir neinum öðrum. Uppáhaldslagið hans í 75 ár Gunnar mætti á tónleika Bubba núna á miðvikudaginn þar sem Bubbi spilaði óskalag fyrir Gunnar. „Þeir spila og spila og aldrei kemur lagið mitt og þegar hann kveður þá fyrst fatta ég að það sem hann kallar aukalag ákvað hann strax í byrjun að yrði lokalag. Það verður fyrir bragðið helmingi lengra því hann notar lagið til að kynna sína átta manna hljómsveit. Allir tóku sín sóló,“ segir Gunnar. Lagið, When The Saints Go Marching In, hefur verið uppáhalds lag Gunnars í um 75 ár. „Pabbi minn hlustaði alltaf á Dixieland-tónlist og ég smitaðist af því og Dixieland- og Sál-mússík er mín mússík. Þetta lag hefur alla tíð verið mitt uppáhalds. En að hlusta á það á svona tónleikum, í svona reggí-útsetningu, það er svolítið sérstakt,“ segir Gunnar. Hann segir Bubba hafa sent sér póst fyrir tónleikana og tilkynnt honum það að hann hefði fundið útgáfu af laginu í flutningi Louis Armstrong sem hann hygðist yfirfæra í reggítóna. „Fyrir bragðið verður lagið fallegra, betra og skemmtilegra en ég hef nokkurn tíma heyrt það,“ segir Gunnar. „Ef þú heyrir það myndirðu falla í sömu gildruna.“ „Ég held hann eigi eftir að spila það aftur fyrir mig.“ „Hann er miklu elskulegri en margur heldur“ Gunnar segist mikill Bubba aðdáandi, sérstaklega eftir að hann kynntist tónlistarmanninum. „Ákveðin tímabil hjá Bubba eru alveg toppurinn hjá mér. Mörg af hans lögum eru alveg óaðfinnanleg. Hann segir svo oft sögur í textunum sínum,“ segir Gunnar. „Mér finnst hann þrælmerkileg persóna, sérstaklega eftir að ég kynntist honum.“ Þeir félagarnir kynntust í húsabraskinu fyrir um sex mánuðum síðan og segir Gunnar allt ferlið hafa verið ánægjulegt. „Hann er miklu elskulegri en margur heldur og konan hans er alveg jafn elskuleg,“ segir Gunnar. Bubbi og Gunnar sitja hér saman.Gunnar Gunnarsson Hannaði og smíðaði húsið sjálfur Hann segir ýmislegt við húskaupin hafa verið ánægjulegt. Eiginkona Gunnars lagði mikla rækt við garðinn þeirra og Bubbi er þekktur rósaræktandi. „Hann var byrjaður að setja niður plöntur áður en hann fékk húsið afhent. Þannig að samkomulagið í gegn um þessa sölu var ljúft og skemmtilegt. Og það var skemmtilegt að kynnast honum. Ég fékk enn meira álit á honum eftir að ég kynntist honum,“ segir Gunnar. „En ég held að hvernig hann útfærði þetta lag, það hækkar bara hans gæðakvóta finnst mér. Þetta er eitt það albesta sem ég hef heyrt um æfina.“ Gunnar hannaði og smíðaði húsið sjálfur fyrir 34 árum síðan. „Húsið er sérlega fallegt og ég veit að hann elskar það. Hann er með herbergi í kjallaranum sérstaklega fyrir sig og ég veit að hann á eftir að njóta þess,“ segir Gunnar. „Ég hafði sérstaklega gaman af því að kynnast honum því maður sér bara svona fólk í fjarska og það er gott þegar maður kynnist fallegum persónum. Hann er betri en margir halda og inn við beinið virkilega góður maður.“
Tónlist Seltjarnarnes Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur Fleiri fréttir Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Sjá meira