Jafntefli hjá Albion og Albion

Karlan Grant skorar jöfnunarmarkið í kvöld.
Karlan Grant skorar jöfnunarmarkið í kvöld. AFP

Brighton & Hove Albion og West Bromwich Albion skildu jöfn 1:1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 

Brighton sem lék á heimavelli komst yfir þegar á 40. mínútu Jake Livermore skoraði þá sjálfsmark. 

Brighton var ekki langt frá því að ná í þrjú stig en Karlan Grant jafnaði fyrir WBA á 83. mínútu. 

Liðin eru á mjög svipuðum slóðum í deildinni eða í 16. og 17. sæti. Brighton með 5 stig en WBA 3 stig og bíður liðið enn eftir fyrsta sigrinum á leiktíðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka