Áfrýjað þremur dómum og þeim fjórða verður áfrýjað

Sveinn Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður.
Sveinn Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður. Mbl.is/Hari

Sveinn Guðmunds­son, lögmaður Þ. Þorgríms­son & co, segist hafa áfrýjað þremur dómum héraðsdóms af þeim fjórum sem fallið hafa síðan í haust gegn umbjóðanda hans vegna utanhússklæðninga.

Þau eru eðlislík en þó hver með sínu sérsniði. Fjórða málið er mjög sérstakt. Þar er um að ræða einstakling sem stefnir mállinu inn og er ekki lengur eigandi af eigninni. Því máli verður að sjálfssögðu áfrýjað.

Umbjóðanda hans hef­ur verið gert að greiða sam­tals tæp­ar 19 millj­ón­ir króna í Héraðsdómi Reykja­vík­ur vegna málanna fjögurra.

„Við ætlum að fá okkar sjónarmið staðfest fyrir Landsrétti með yfirmati,“ segir Sveinn Guðmundsson, lögmaður Þ. Þorgrímsson & co.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert