Óskar Hrafn: Síðustu 15 mínúturnar voru þjáning Árni Jóhannsson skrifar 11. maí 2022 21:45 Óskar Hrafn var ánægður með mannlega styrkinn í sínum mönnum Hulda Margrét Breiðablik vann Stjörnuna fyrr í kvöld í frábærum fótboltaleik 3-2 í fimmtu umferð Bestu deildar karla. Þjálfari Breiðabliks, Óskar Hrafn Þorvaldsson var mjög ánægður með úrslitin og að þau hafi fylgt frammistöðunni sem hans menn sýndu í kvöld. Mannlegur styrkur og þjáning komu mikið við sögu í svörum hans um leikinn.
Óskar var spurður að því hvort þessi leikur hafi verið óþarflega spennandi frá hans bæjardyrum séð en lungan úr leiknum réðu Blikar lögum og lofum. „Mér fannst leikurinn já óþarflega spennandi. Hann var tvískiptur þessi leikur og ég átta mig ekki alveg á því hvar skiptin eru en fyrstu 70-75 mínúturnar höfðum við fullkomna stjórn á leiknum. Við hleypum þeim inn í leikinn og þeir jafna. Við hefðum átt að vera búnir að ganga frá leiknum en fyrst að svo var ekki endum við í 12-15 mínútum þar sem menn þurftu að grafa djúpt. Þetta var þjáning og einhver vinnusemi og svo kemur þetta frábæra mark frá Viktori en síðustu 15 mínúturnar voru bara þjáning. Það var sterkt mannleg eðli í að grafa djúpt og ná í þennan sigur.“ Óskar var þá spurður að því hvort það væri ekki þeim mun ánægjulegra að sjá leikmenn hans geta grafið svona djúpt til að ná í sigurinn. „Það kemur mér ekki endilega á óvart að þeir hafi náð að grafa svona djúpt. Þeir hafa oft gert það á þeim tíma sem ég hef verið með þeim. Það er hægt að skipta þessari frammistöðu á tvo vegu. Fyrstu 70 mínúturnar var þetta virkilega góð fótboltaleg frammistaða þar sem við héldum boltanum vel en vorum ekki nógu skarpir í færunum. Svo komu síðustu 15-20 mínúturnar þar sem við þurftum að grafa. Þetta var mannlegur styrkleiki. Úr hverju ertu gerður? Stjörnuliðið er orkumikið lið og þeir látat þig ekki í friði og halda áfram þangað til flautan gellur þannig að þú getur aldrei hætt og aldrei hvílt þig á móti þeim. Menn þjáðust þessar mínútur og sóttu djúpt kraft til að klára leikinn og ég er bara mjög ánægður með það og finnst það frábært að úrslitin fylgi með svona frammistöðu.“ Það var mikill hiti í leiknum og að mati Óskars var línan hjá dómurunum skrýtin þó hún hafi ekki haft áhrif. Hann var spurður út í dómarana og einnig fyrsta mark Stjörnumanna sem var umdeilt. „Ég sá ekki fyrsta markið nógu vel en miðað við hvernig hinir geðprúðustu menn létu eftir það þá hlýtur eitthvað að hafa verið bogið við það. Ég veit það samt ekki, ég sá það ekki. Línan var skrýtin í leiknum en það hafði ekki úrslitaáhrif. Við hleyptum þeim inn í leikinn með þessu marki og þetta er bara eins og það er. Við getum verið hérna til miðnættis og farið yfir alla dómana en við getum líka farið yfir öll mistökin sem við gerðum í leiknum.“ Ísak Snær Þorvaldsson hefur verið mikið á milli tannanna á fólki enda búinn að vera frábær í sumar. Hann komst ekki á blað og var í strangri gæslu Stjörnumanna. Var ekki þá ánægjulegt að aðrir stigu upp í sóknarleiknum til að fylla skarð hans.? „Það væri óeðlilegt að ætlast til að Ísak skori tvö mörk í hverjum einasta leik. Hann vann hinsvegar alveg mjög óeigingjarna vinnu sem opnaði fyrir liðsfélaga sína. Hann er náttúrlega feykilega öflugur liðsmaður og ég er ánægður með hann og allt liðið.“
Besta deild karla Breiðablik Tengdar fréttir Leik lokið: Breiðablik 3-2 Stjarnan | Blikar ná í mikilvæg stig í hörku leik Óskar Hrafn Þorvaldsson og hans lærisveinar í Breiðablik höfðu betur gegn gamla læriföðurinum, Ágústi Gylfasyni og Stjörnumönnum. Breiðablik er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og sitja sem fastast á toppi deildarinnar. 11. maí 2022 22:23 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn Í beinni: Keflavík - Grindavík | Geta Keflvíkingar bitið frá sér án Remy? Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Enski boltinn Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli Sjá meira
Leik lokið: Breiðablik 3-2 Stjarnan | Blikar ná í mikilvæg stig í hörku leik Óskar Hrafn Þorvaldsson og hans lærisveinar í Breiðablik höfðu betur gegn gamla læriföðurinum, Ágústi Gylfasyni og Stjörnumönnum. Breiðablik er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og sitja sem fastast á toppi deildarinnar. 11. maí 2022 22:23